Langar að keppa á HM hjá WPF Hvað er að frétta Þorvaldur "Valdi Bolla" ?  Valdi Bolla
|
Það er allt gott að frétta, maður er bara í sveitinni og hefur það rosa gott. Nú hefur lítið sést til þín í kraftlyftingunum undanfarið Ég hef ekkert verið að gera neitt rosa mikið í lyftingunum núna síðastliðið árið þar sem ég lenti í bak veseni. Eftir það þá hrundi bara allt, andlega hliðin og andleysið náði tökum á manni. En ég fékk áhuga á veiði bæði með stöng og byssu og hefur það núna verið aðal áhugamálið þetta
árið.
Hvenær kepptirðu síðast ? Keppti síðast á Íslandsmóti ÍKF METAL árið 2009 sem var haldið upp í Mótormax, en þar náði þeim árangri að beygja 415kg. Smellið á nánar til að lesa allt viðtalið
Ég er samt aðeins byrjaður að hreyfa lóðin aftur og þegar ég byrja að dreyma lyftingar og að keppa þá held ég að andinn sé að koma
aftur yfir mann eða er það ekki? :) Einhver markmið ? Markmiðin mín núna eru að
skafa burt aðeins af fitu og svo langar mig allveg rosalega að vera í 125kg flokki þegar ég keppi næst. Nenni ekki lengur að vera hlunkur ;) Svo ég ætla að vera undan Palla Fermeter að taka tonnið á kjötinu :)
Svo þú ert nú eitthvað farinn að hugsa um keppnir aftur, ertu með eitthvað sérstakt mót í huga ? Stefnan er tekin á að reyna að keppa á einhverjum mótum hérna heima á
næsta ári. Svo langar mér mikið að reyna að fara á heimsmeistara mótið
hjá WPF á næsta ári sem verður haldið í Flórida. Held að það verði
hrikalega skemmtileg ferð og margir fari þangað til að keppa.
Kveðja, Bollan 
|