Tíu Íslendingar á Heimsmeistaramót WPF 2010
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Fimmtudagur, 28. október 2010 11:26

Heimsmeistaramót WPF fer fram dagana 3.-7.nóvember í Bath, Englandi og eru tíu Íslendingar að fara á mótið ! Hér eru allar keppendurnir kynntir:

Einar Örn Guðnason
Ljósm. Sunna Hlín


Fyrst ber að nefna hinn 19 ára Einar Örn Guðnason sem keppti fyrst árið 2009 en hann er að fara keppa í -90kg flokki drengja 15-19 ára í kraftlyftingum 

Einar: "Undirbúningur fyrir mótið gengur bara rosalega vel ég er búinn að fara upp í 240kg í beygju, 190kg í bekk (er búinn að fara í 220kg á einfaldan búkka!) og 220kg í deddi þetta var allt skítlétt og frískt. Ég stefni á 270+ í beygju og 200+ í bekk og vonandi dedda ég 240-250kg :P Ég á heimsmet í beygju með 262,5 kg og bekk með 185 kg svo á ég total metið með 665 kg. Þetta er allt í 90kg flokki. Ég á líka heimsmet í bekk í -100 með 170 kg. En ég keppi bara í power úti."

Með Hrikalegri power kveðju
Loftpressan!





Þröstur Ólason
Ljósm.Sunna Hlín


Í unglingaflokki 20-23 ára keppir Þröstur Ólason en hann byrjaði einnig að keppa árið 2009. Hann keppir í öllum greinunum og einnig á Heimsmeistaramótinu í réttstöðulyftu

Þröstur: "Það gengur allt mjög vel og samkvæmt áætlun! Hingað til er ég búinn að beygja 310kg og búinn að dedda 300kg. Bekkurinn kemur inn síðar! Svo stefni ég á að bæta eigið heimsmet í réttstöðulyftu(single lift) í Bath en það stendur í 290kg."








Fjölnir Guðmannsson
Ljósm. Sunna Hlín

Læknaneminn Fjölnir Guðmannsson aka Fjölnir teygjutvister keppir í -110kg opnum flokki i öllum greinum og einnig á HM í bekkpressu.

Fjölnir: "Undirbúningurinn gengur alveg hreint ágætlega.  Þó einhver græjuvandræði, en það reddast alltaf á endanum.  Hef fáar æfingar misst úr og æft vel í Steve Gym með Þresti Óla.

Beygjurnar hafa orðið fyrir græjuveseni, sem líklegast sér fyrir endann á núna, og þar hef ég bara farið upp í 230kg, en ég á síðustu beygjuæfinguna eftir og fer þá uppí 250kg.  Bekkurinn hefur líka mátt við fínstillingu en þar hef ég bara farið upp í 200kg.  Deddið gengur hins vegar ágætlega aldrei þessu vant, og þar er ég búinn að taka 242.5kg

Úti er ég að stefna á 250-60 í beygjum, 210-20 í bekknum og 240-50 í deddinu. Total allavega 700kg

Neibb, engin heimsmet hér á bæ.  Í single lift er bekkpressumetið 307.5kg og deddmetið á Bjarki Geysir á sem er 321kg. Í þríþrautinni (keppt í öllum greinum) eru metin 430kg í hnébeygju, 292.5kg í bekkpressu, 367.5kg í deddi og 1025kg total.  Þessar tölur gefa manni eitthvað til að stefna á ;)


Bjarki Þór Sigurðsson
Ljósm. Sunna Hlín


Bjarki Þór Sigurðsson keppir einnig í
110kg opnum flokki i öllum greinum og ætlar líka að keppa á HM í réttstöðulyftu

Bjarki: "Undirbúningurinn gengur bara vel, er í mínu besta formi. Er búinn að beygja 280x2, á bekknum er ég búinn að taka 200 á einn kubb og 190kg alveg niður. Tók síðasta þunga deddið 15.október og tók 310x2.

Er að stefna á að taka 310 í beygjum, 210 á bekk, veit ekki hvað ég geri í deddinu í power-keppninni, þar sem ég ætla að reyna að spara mig þar fyrir dedd-mótið.

Ég á heimsmetið í sér skráðu deddi 321kg sem ég tók á EM á Akureyri í sumar, ég keppi í sér deddi 2 dögum eftir powerinn. Ætla að reyna að bæta heimsmetið þá. Það eru að vísu 2 aðrir sem gætu bætt það líka, Breti og Búlgari.






Benedikt Magnússon "eldri" keppir í Öldungaflokki 40-44 ára. -140kg.fl.

Benedikt: "Á síðustu þungu æfingunni fyrir mótið gekk mjög vel og ég bætti Heimsmetið í mínum flokki í réttstöðum um lítil 2,5 kg. Metið er sem sagt 322,5 en ég fór í 325+ klemmur og gekk það vel. Ég stefni á að sprengja þetta met út í buskann og koma með titilinn heim ásamt dollunni ;) Nú tekur hvíldin við ásamt léttum æfingum til að viðhalda spennunni svo verður allt lagt undir 7.nóvember !"

Kveðja, Benni "Tjakkur" Magg






Gunnar Freyr Rúnarsson
Ljósm.Sunna Hlín


Gunnar Freyr Rúnarsson keppir í Öldungaflokki 45-49ára -
110kg í bekkpressu og réttstöðulyftu

Gunnar: "Undirbúningurinn gengur þokkalega. Reyndar hafa æfingar í bekkpressuslopp ekki verið svo margar því miður. Stefnan er að taka 220-230kg í Bath, en ég á 210kg á móti. Síðasta deddæfing klikkaði, því ég ætlaði að repsa 280kg, en setti "eitthvað" meira á stöngina í miklum anda en tók bara 1. reps. Samt er stefnan tekin á 300 kg í Barth. Heimsmetið í single lift er reyndar 305kg í 110kg flokki. WPF Heimsmetið í mínum aldursflokki í 100kg er hins vegar 280kg. Ég tek það seinna, því ég er 109 kg í dag :) Metið í bekknum er hins vegar mjög gott, en það á Ingvar Ingvarsson bæði i 110 kg & 125 kg flokki. Það síðara er hin heimsfræga 300 kg lyfta. Ég á séns í réttstöðumetið í 110 kg flokki sem er 305 kg og tæki hvenær sem er metið í 100 kg flokki, sem er bara 280 kg, en þá þyrfti ég að létta mig örlítið"




Kári Elísson


Kári Elísson aka Catzilla keppir í Öldungaflokki 55-59ára -75kg í kraftlyftingum, bekkpressu og réttstöðulyftu.

"Undirbúningur minn hefur í heild sinni gengið mjög vel. Ég stefni á að bæta öll heimsmetin í mínum öldungaflokki.

Í kraftlyftingum á ég heimsmetin: 200kg - 145,5kg - 255kg = 600,5kg

Í bekkpressu á ég 155kg

Í réttstöðulyftu á ég 256kg

Ég hef ekki tekið neina toppa á æfingum heldur fer bara í 80-90% þyngdir. Á æfingu er ég búinn að taka 190kg í beygjum, 135kg á bekk og 255 í deddi. Ég á svo eftir að fara hærra í næstu viku og er stefnan tekin á 200kg í beygjum, 140-145kg í bekkpressu.

Í deddinu stíla ég á að taka 260kg í annarri tilraun á mótinu og sjá svo til með framhaldið. Alþjóðlegir aðdáendur krefjast þess að ég taki 600 pund (272,5kg) í deddinu og ég reikna með að gera það fyrir þá. Það er smá misskilningur í gangi því þó nokkuð margir útlendingar halda að ég sé 90-100kg moli miðað við myndir sem þeir hafa séð af mér. Frekar erfitt að leiðrétta þá og eiginlega hreint ekkert gaman!"

Kveðja, Catzilla

Einnig keppa:

Birgir Þorsteinsson keppir í Öldungaflokki 44-49 ára -140kg í Kraftlyftingum, bekkpressu og réttstöðulyftu

Jón Gunnarsson keppir í -90kg opnum flokki í Kraftlyftingum

Flosi Jónsson keppir í Öldungaflokki 55-59ára -100kg í bekkpressu og réttstöðulyftuKári master 55-59ára

Dómari og liðsstjóri Hermann Haraldsson (Flosi mun einnig dæma á mótinu) og aðstoðarmaður er Valdimar R Valdimarsson.