"Jötunheimar … það virkar"
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Miðvikudagur, 20. október 2010 11:09

Hvað er að frétta Benedikt "Tjakkur" Magnússon ?

Nú hefur Dísin mín, Bryndís Ólafsdóttir Sunddrottning/Aflraunakona, og ég opnað mjög gott gym "Jötunheima" hér heima á Selfossi. Hér er frábær aðstaða fyrir kraftlyftingar og þær auka æfingar sem menn/konur þurfa að taka með. Kraftlyftingadeild UMF Selfoss æfir hér og sé ég um þjálfun á þeim drengjum, enn er engin stelpa að æfa fyrir utan Bryndísi. Ég er einnig með Power Burn tíma í sömu aðstöðu.


 

 

Við ákváðum að gera þessa aðstöðu eins góða og möglegt væri fyrir kraftlyftingadeildina vegna þess að Bryndís tók að sér formennsku deildarinnar og aðstaðan sem í boði var hreinlega ekki samboðin okkur og því fólki sem vil gera eitthvað í sinni íþrótt. Aðstöðuna opnuðum við opinberlega 1.október en við vorum aðeins byrjuð að þjáfa í september. Jötunheimar eru að Baugstjörn 17, heimili okkar Bryndísar.

Ef  ég segi ykkur hvernig nafnið kom til þá var ég að keyra með Dísinni minni á Skaganum um daginn þegar mágur minn hringir og spyr hvort gymmið sé komið með nafn? Ég hvað svo eigi vera, hann segist þá vera með nafn í huga "Kraftaheimar" en segi honum þá að það gangi ekki því það sé mikill Köttur sem eigi það nafn! Að því orði slepptu segi ég "Jötunheimar … það virkar". Svo ræddum við Bryndís aðeins um þetta og ákváðum að nota það. Svo löng er nú sú saga.

Hvenær byrjaðir þú að æfa ?

Ég byrjaði að æfa í íþróttahúsinu á Vesturgötunni á Akranesi, ætli ég hafi ekki verið ca, 15 ára. Þá voru sett þar inn í bakherbergi lóð, stangir og dragvél frá CalGym sem einhverjr jafn ungir muna kannski eftir. Ég fann mig strax þarna enda hafði áhugi minn á lyftingum verið með mér lengi þá. Ég náði samt ekki að verða neitt "hrikalegur" við bjuggum í ca 5 km fjarlægð frá gymminun og ég hljóp þangað á æfingu og svo aftur heim þannig að ég var bara "hlaupagrind" sem lyfti lóðum. Svo var bara borðað á matmálstímum í mínum foreldrahúsum þannig að það fór margt forgörðum af því sem maður lagði svo mikinn metnað í hehehe ;)

Þetta er upphafið af mínum æfingaferli, ég fór svo ungur á sjóinn en æfði oft vel þegar ég var í landi en samt betur eftir þrítugt. Var samt oftar í loftháðum æfingum og pumpi heldur en "Hard Core" lyftingum.

Nú ertu að fara keppa á Heimsmeistaramóti WPF hvaða tölur ertu að stefna á ?

Síðasta þunga æfing fyrir Bath var hjá mér á laugardaginn síðasta. Það gekk mjög vel og bætti ég Heimsmetið í mínum flokki í réttstöðum um lítil 2,5 kg. Metið er sem sagt 322,5 en ég fór í 325+ klemmur og gekk það vel. Ég stefni á að sprengja þetta met út í buskann og koma með titilinn heim ásamt dollunni ;) Nú tekur hvíldin við ásamt léttum æfingum til að viðhalda spennunni svo verður allt lagt undir 07 nov ...