Skrifað af: Sunnu Hlín   
Miðvikudagur, 17. nóvember 2010 12:54

"sá svo ljósið og fór í einu íþróttina með viti, Kraftlyftingar !"


21.nóvember 2009 - Ljósm. Klaus Jensen

Júlían Jóhann er 17 ára og hefur verið áberandi í kraftlyftinum hjá KRAFT undanfarið. Áður en hann byrjaði í Kraftlyftinum var hann í körfubolta, júdó og fótbolta en "sá svo ljósið og fór í einu íþróttina með viti, Kraftlyftingar !"

Júlían: "Núna er ég að undirbúa mig fyrir bikarmót Kraft sem verður haldið upp í Íþróttamiðstöðinni Mosfellsbæ sunnudaginn 21. nóvember. Undirbúningurinn hefur gengið vel en ég er búinn að bekka 170x2, beygja 305X2 í beygjum og dedda 300X1 fislétt !!

Ég mun að öllum líkindum reyna við nokkur norðurlandamet svo þetta er hrikalega spennandi !"

Smellið á nánar til að lesa allt viðtalið

"Ég stefni á að keppa í -125kg.fl. en það lítur út fyrir að við verðum nokkrir í honum, meðal annars Fannar Gauti, Árni Freyr og Lárus Ívar og svo hugsanlega fleiri."

Ég byrjaði að æfa kraftlyftingar fyrir rétt rúmlega 2 árum (1.september 2008) og langaði strax að keppa. Mig langaði alltaf að verða stór og sterkur og er enn að stefna á það.

Fyrst mótið sem ég keppti á var Byrjendamóti KRAFT 2009 en þar féll ég út í hnébeygjunni með 160kg var búinn að beygja það oft fyrir mótið en þegar kom að mótinu þá fór það ekki upp, hefði átt að byrja lægra eftir á að hyggja. Ég tók 80 í bekk og 195 í réttstöðulyftu og í -90kg. fl.