Miðvikudagur, 23. janúar 2008 00:00

Hvað er að frétta ?

Þorvaldur Ásberg Kristbergsson.
18.02.84
Valdi Bolla

Gælunafn:
Borgarnesbollan (oftast kallaður Bollan)

Heyrðu það er bara allt gott að frétta af mér núna. Á vona á mínu fyrsta barni í byrjun febrúar og er í skýjunum með það. Svo er ég að komast í gang aftur í powernum eftir að ég meiddist seint á seinasta ári, reif eitthvað og trosnaði drasl í olboganum á mér en það er allt á uppleið núna sem betur fer. Lenti í smá æfingar þunglyndi í byrjun árs og sumar eins og maður kallar það og var að spá í að hætta alveg. Fékk þá flugu í hausinn að fara að æfa kúluvarp en það er nú allt dottið upp fyrir og stefnan er tekinn bara að Kraftlyftingar og gera gott þar. Stefnan er tekin núna að reyna að taka yfir tonnið eftir ár á næsta bikarmóti. Get ekki allveg lagt það á fjölskyldulífið að keyra upp fyrir Íslansmótið í apríl út af erfingjanum. En ég get lofað að ég er sko ekki hættur og það fara bara að koma góðar tölur á næstu árum.

Búseta
Ég og konan erum nýbúinn að kaupa okkur íbúð í Seljahverfinu í Breiðholti (samt ekki í gettoinu)

Bestu power tölur
Það er 357,5 kg í beygjum
220 kg í bekkpressu (er ekki nógu ánægður með það kann ekkert á þetta sloppa rusl:)
340 í réttstöðulyftu.

Hvenar byrjaðir þú að æfa?
Ég byrjaði ekki að æfa fyrren 2003, held að það hafi verið í september.
(var bara haugur fram að þeim tíma)


Hvar æfiru í dag?
Ég æfi í Silfursporti


Einhverjir titlar ?
Já þeir eru nokkrir.
- Íslandsmeistari unglinga 2005 í +125 flokki (fyrsta mótið sem á keppti á)
- Íslandsmeistari 2006 í 125kg flokki (setti þar Íslandsmet unglinga í hnébeygju 357,5 kg sem Auðunn Jónsson átti)
- Bikarmeistari 2006 í +125kg flokki
- Íslandsmeistari í réttstöðulyftu 2006


Við hvað ertu að vinna?
Ég er lærður smiður og er að vinna við það.


Hvernig kom það til að Íslandsmótið í Réttstöðu verður haldið í Borgarnesi ?

Okkur í stjórn Kraft fannst vera kominn tími til að fara með þetta aðeins út fyrir höfuðborgina og þar sem ég átti heima þar og byrjaði að æfa þá datt mér í hug að fara með mótið þangað. Þar er mjög góð aðstaða og flott að halda mót. Líka það að fara að kynna sportið og ætlum í framtíðinni að fara með eitt til tvö mót eitthvað út á land á hverju ári. Allur ágóði af þessu móti mun renna til Langveikra barna/ Einstök börn. Söfnuninn fyrir mótið hefur ekki gengið að óskum en það hljóta einhverjir að styrkja okkur því þetta er gott málefni. Vona að sem flestir komi og kíkja á heilmikil átök.


Ætlar þú ekki sjálfur að keppa á mótinu ?
Nei því miður ætla ég ekki að keppa væri samt gaman á heima velli. Ég er bara ekki í nógu góðu formi en það koma fleiri mót.


Nú ertu þekktur fyrir að vera uppfullur af anda, bæði á æfingum og mótum. Hvaðan kemur þessi andi og hefurðu alltaf verið svona jákvæður ?
Nei get nú ekki sagt það að ég sé jákvæður maður hahaha. En þegar maður er kominn í æfingar fötin þá kemur eitthvað yfir mann og maður hefur lært á það ef maður er jákvæður á sportið þá er sportið jákvætt á mann.


Hvað finnst þér um þá stefnu sem kraftlyftingar á Íslandi eru að taka ?
Finnst þér eitthvað hafa breyst síðan WPC og KRAFT opnuðu á milli ?
Mér finnst bara jákvætt að það sé opið á milli þessara félaga, þá getur maður stílað inn á fleiri mót. Er ánægður með á WPC séu með kjötmót, þetta er jákvætt fyrir sportið. Það er líka mjög gaman að sjá að það eru margir ungir strákar að koma upp og ég held að kraftlyftingar á Íslandi eigi eftir að blómstra mikið á næstu árum.


Hver er helsta fyrirmyndin innanlands og utan ?

Auðunn Jónsson innanlands, Ed Coan og Kirk Karowski.


Stefnirðu á einhverjar met bætingar á næstunni ?
já yfir tonnið helst eitthvað yfir það (maður verður að hafa trú á sér þá getur maður allt)


Hefurðu keppt í aflraunum ?
Já keppti árið 2005 þegar aflraunirnar klofnuðu.
Keppti á Sterkasti Maður Íslands og lenti þar í 4 sæti en þriðji af íslendingum og var mjög stoltur hehe. En eftir það sumar ákvað ég að hætta því rugli og snúa mér að kraftlyftingum á fullu. Var bara að svekktur því ég er of lítill í þetta, er nú bara einn og ekki neitt á hæð.