|
Úrklippa af Bleikt.is
Er í stöðugri keppni við sjálfa mig
13.3.2011 | 19.00 - Klara Egilson
María góðri stundu með strákunum við æfingar
María Guðsteinsdóttir kallar ekki allt ömmu sína þegar að kraftlyftingum kemur, en hún er margfaldur Íslandsmeistari í kraftlyftingum kvenna og varði titilinn enn einu sinni í gær þegar hún bar sigur úr býtum í sínum þyngdarflokki á Íslandsmeistaramótinu sem fram fór í Njarðvík.
Einnig varð hún stigahæst kvenna í öllum greinum og samanlögðum árangri. Samtals lyfti María 422,5 kg á mótinu í gær en hún keppti í 72 kg flokki kvenna.
María sem er fertug að aldri, er hvergi af baki dottin og stefnir nú á Evrópumeistaramótið sem haldið verður í byrjun maí á þessu ári í Tékklandi. Bleikt náði tali af Maríu, sem fagnar tíu ára keppnisafmæli nú í ár og spurði hana nokkurra léttra spurninga um ástríðu hennar fyrir kraftlyftingum og lóðum.
Hvað ertu búin að vera lengi að æfa?
„Ég hóf ferilinn fyrir næstum tíu árum síðan og má í raun segja að ég hafi hent mér út í djúpu laugina þegar ég byrjaði að lyfta fyrir alvöru. Ég hafði vissulega einhvern grunn þegar ég fór fyrst út í lyftingar og hafði æft Body Pump í þrjú til fjögur ár. Ég gekk því ekki beint inn af götunni og stormaði í lóðin, því ég hafði æft alhliða líkamsrækt mörg ár. Eitt leiddi af öðru og áður en ég vissi af var ég komin inn í salinn til strákanna, sem tóku mér vel og leiðbeindu mér eftir bestu getu.
Þegar ég hóf feril minn í kraftlyftingum var ég ein af örfáum konum sem kepptu í kraftlyftingum og alltaf sú eina í mínum þyngdarflokki. Ég keppti fyrst bara innanlands og keppti því við sjálfa mig og tók þátt í mótum til að bæta eigin árangur og Íslandsmet. Eftir 4 ár keppti ég á mínu fyrsta alþjóðamóti til þess að fá meiri samkeppni og hef nú keppt á mörgum mótum erlendis. Í dag hef ég keppinauta á Íslandi sem ég hafði ekki áður, því aukning á kraftlyftingum kvenna hefur verið nokkur undanfarin ár og áhuginn fer ört vaxandi. Það eru margar nýjar og mjög efnilegar stelpur að byrja í þessu, sem er afar ánægjuleg þróun að mínu mati“.
Hvernig kom áhuginn á kraftlyftingum til?
„Áhuginn kviknaði í raun í gegnum Body Pump tímana. Margar konur þekkja þessa tíma vel, en Body Pump eru hóptímar þar sem konur lyfta lóðum, en eru eru ekki með miklar þyngdir á stönginni heldur gera margar endurtekningar. Ég fann að ég hafði gaman af því að lyfta en vildi lyfta þyngri lóðum og flutti mig því yfir í tækjasalinn þar sem ég fór að prófa mig áfram.
Á þessum tímapunkti setti ég mig í samband við kraftlyftingamenn, sem tóku mér einstaklega vel, leiðbeindu mér og kenndu mér tæknina við að lyfta. Sumir hverjir voru með áratuga reynslu af kraftlyftingum, sem var ómetanleg í mínum augum. Ég æfði lengi vel með strákunum eingöngu og hef aldrei fundið fyrir neinum móral, heldur var ég boðin velkomin í hópinn. Karlmenn taka konum sem hafa áhuga á kraftlyftingum að öllu jöfnu mjög vel og hef ég hlotið mjög góða aðstoð frá strákunum og fengið mikla hvatningu frá þeim.„
Hefur þú tekið þátt í mörgum mótum til þessa?
„Já, það hef ég gert og mótin eru orðin svo mörg að ég er löngu búin að týna tölunni á þeim. Í byrjun keppti ég á innanlandsmótum en svo fikraði ég mig áfram og fór að taka þátt í alþjóðlegum mótum. Ég hef tvisvar sinnum orðið Norðurlandameistari í mínum þyngdarflokki, farið á þrjú Evrópumót og fimm sinnum keppt á Heimsmeistaramótum.
Þú náðir Íslandsmeistaratitlinum í gær. Hvernig var tilfinningin?
„Það er alltaf gaman að vinna titla, sérstaklega þegar fleiri konur eru að keppa með manni. Aukning kvenna í greininni hefur gert það að verkum að samkeppnin er orðin meiri, öfugt við það sem áður var, þegar ég keppti einsömul í mínum flokki. Þó horfi ég meira í tölur en titla og reyni að bæta minn eigin árangur, reyni að lyfta þyngra og legg áherslu á framför í tækni. Í raun má því segja að ég sé alltaf í keppni við sjálfa mig fyrst og fremst. Mér er mest um vert að bæta minn persónulega árangur á mótum en gleðst sannarlega yfir öllum titlum sem vinnast.“
Einhver ráð sem þú hefur fyrir konur sem hafa áhuga á kraftlyftingum?
Ég hvet þær konur sem hafa áhuga á kraftlyftingum til þess að hafa samband við þau félög sem eru starfandi innan Kraftlyftingasambands Íslands. Kraftlyftingadeildir eru starfræktar innan íþróttafélaga víðs vegar um landið og einnig má finna sæg upplýsinga um íþróttina á vefsíðunni kraft.is – þar er gagnagrunnur um úrslit móta mörg ár aftur í tímann ásamt þeim íþróttamótum sem eru á næstunni.
Ég hvet konur hiklaust til að prófa enda er þetta bæði krefjandi og mjög skemmtileg íþróttagrein. Það er töluvert um það að konur lyfti lóðum þótt þær séu ekki að keppa og því mæli ég með því að þær prófi kraftlyftingar ef áhuginn er fyrir hendi. Ég sé að minnsta kosti ekki eftir því að hafa byrjað í þessu.
Kraftlyftingar eru fyrir alla, bæði konur og karla og fólk getur keppt í þessari íþróttagrein um leið og það hefur náð 14 ára aldri. Flestir æfa þessa íþrótt með það í huga að keppa á mótum innanlands og jafnvel erlendis en sumir iðka kraftlyftingar til að halda sér í formi, en ekki endilega til að keppa á mótum. Aðrir vilja einfaldlega njóta félagsskaparins. Það geta allir komið á sínum eigin forsendum inn í þessa íþróttagrein.“
Að endingu, María – þurfa konur ekki að þyngja sig úr hófi til að geta lyft lóðum?
„Alls ekki. Það er alger misskilningur. Þyngarflokkar í kraftlyftingum eru margir og eru frá 47 kg flokki upp í 84+ flokk. Það skiptir því öllu máli hvað maður er þungur og 50 kg kona getur byrjað að æfa rétt eins og kona sem er 90 kg. Kraftlyftingar snúast bæði um styrk og tækni, og að geta lyft sem mestu í þeim þyngdarflokki sem maður keppir í“.
|