Sigfús Fossdal Alveg synd að ekki skuli vera búið að fjalla um hann á íþróttasíðum blaðanna þar sem hann er búinn að vera moka inn titlum í útlöndum í ár. Ég fór og kannaði málið betur og ákvað að fá upplýsingar um þetta hjá honum Fúsa, sem er 186cm og 134kg !!
134Kg! - Hvað éturðu eiginlega yfir daginn ? það er eiginlega rosalega misjafnt, ég er ekki sá besti hvað varðar mataræði en ég reyni að éta nógu mikið af próteinum. en ég borða allavega 0,5kg af Skyri og einn smoothie og svo alltaf prótein frá Labrada.
Hvernig er stemmningin fyrir mótið ? Hún er mjög góð, ég er að fara á þriðjudaginn og er orðinn mjög spenntur.
Fer einhver með ? já Kiddi, það er gaman af honum. Ég, hann og Eyjólfur æfðum mikið saman seinasta vetur á Akureyri áður en ég kom suður. Þarna eru á ferðinni tvö hrikalega jákvæð efni ef þeir halda áfram að æfa vel.
Hver er Eyjólfur ? Eyjólfur Unnarsson Krókódíll, byrjaði að lyfta í sept í fyrra og var búin að dedda 230,5 í apríl, sem var Akureyrarmet Unglinga í -90 en hann er mjög hár og að dedda svona þungt svona léttur og hár, (yfir 190) er bara rugl
Hvenær er sjálf keppnin ? Ég er að keppa á laugardeginum, 9.sept, en hún hefst á þriðjudaginn(5.sept) og stendur fram á laugardag(9.sept) þetta verður mjög spennandi, en leiðinlegt að það vantar þarna Úkraínumenn og Rússa
já ... féllu þeir ekki á lyfjaprófi ? Jú, það féllu svo margir á Meistaramótunum þarna að þeir fengu keppnisbann sem hefst 1.sept og stendur til loka næsta árs.
Er einhver heimasíða sem fjallar um mótið ? http://www.powerlifting-ipf.com/
http://www.powerlifting-ipf.com/Invitation%20World%20Sub-Juniors_Juniors%202006.doc
í Invitations, á síðunni, eru svo nokkur mót, og þar er meðal annars upplýsingar um mótið mitt og öldunga mótið sem Bóndinn er að fara á og HM fullorðinna sem Auðunn og María eru að fara á. Í Nominations eru skráningar á mót.
Komnar einhverjar tölur um hvað þú ætlar að taka ? Já svona, ég er búin að taka 320 í beygjum sem að ég kæmist í gegn með á mótinu, en 330 í svona full grunnum beygjum, svo er ég búin að dedda 300 í góðri keppnislyftu, en 310 svona þannig að ég myndi ekki samþykkja það sem keppnislyftu. Svo tók ég áðan á bekknum 250 í góðri lyftu, þannig að þetta lýtur allt vel út. Ég geri mér vonir um að ná 900 total úti
Ertu ekki búinn að vera duglegur að fara á mót úti undanfarið ? jú ég fór í apríl á NM Unglinga, það var haldið var í Randers Danmörku. Varð Norðurlandameistari þar annað árið í röð, þrátt fyrir að hafa gengið mjög illa. Fór svo helgina eftir, fyrstu helgina í maí, á Norðurlandamót Unglinga í Bekkpressu sem fór fram í Bergen Noregi. Varð þar líka Norðurlandameistari þrátt fyrir annað ekki nógu gott mót.
Svo fór ég á EM unglinga í Brattslava í Slóvakíu, þar sem ég hafði létt mig niður í -125 og var allur mjög máttlaus þarna úti. Endaði í 6 sæti sem var alveg skelfilegt. Þannig að já, mikið erlendis og það sést á buddunni.
Ertu ekki með neina styrktaraðila Jú Bifreiðarverkstæði Akureyrar, Brim, BYKO, Íþróttabúðin Grensásvegi, Kaffi Akureyri, KB Banki, KEA, Marel, Kea Skyr, Sparisjóður Norðlendinga, Vitamin.is, Öryggismiðstöð Íslands og Labrada. Á síðunni hjá mér er ég með lista yfir þá sem hafa styrkt mig á árinu.
 Hefurðu þá ekkert verið að keppa hérna heima á árinu ? Jú ég keppti á Íslandsmótinu í Bekkpressu í janúar, opnum flokki þar sem ég varð Íslandsmeistari,Íslandsmóti Unglinga í Kraftlyftingum þar sem að ég varð tvöfaldur Íslandsmeistari Unglinga Á Akureyri í byrjun apríl á Akureyrarmótinu í Push and Pull (bekkur og dedd) þar sem ég datt út í bekkpressunni og lauk þar með ekki keppni.
Keppti á Héðinsmótinu í júní þar sem ég var bara með upp á funnið og endaði annar í +125. Þetta var flott mót, Ingvar með met í 100kg, Kobbi í 110kg og Ádí í 125kg. Ég hef verið að keppa full mikið í ár, og sýndi það sig á EM þar sem þreytan var farin að há mér mikið.
Hver er aðallyftingarstöð Kraftakarla á Akureyri ? Það eru Jötunheimar í íþróttahöllinni, ég hef alist upp þar með köllum eins og Rúnari Friðrikssyni \\\"Fjósa\\\" og Elvari Óskarssyni meira og minna seinustu 9 ár, en er sem stendur að vinna í Reykjavík og hef verið að æfa með Auðunni Jónssyni og Valda Borgarness Trölli í Gym80, ég er þó alltaf duglegur að kíkja heim í heiðardalinn og taka á því í Jötunheimum
Við hvað ertu að vinna hér í Rvík ? Ég er að vinna hjá Öryggismiðstöð Íslands. Er svo að fara í fjarnám frá VMA til að ljúka stúdentsprófi ekki seinna enn á næsta ári.
Ætlarðu þá að vera í fjarnáminu hérna í Rvík ? Já ég verð hérna amk í vetur. Ef ég næ að útskrifast í vor þá væri draumurinn að komast inn í Háskóla í Dk næsta haust og læra þar íþróttafræði. Ég veit t.d. að í Arhusum er Nils Starkjær að kenna, en hann á 305 kg á bekk, og ætla ég mér amk að sækja um þar.
Hvað langar þig að gera í framtíðinni ? Mig langar mest að halda áfram í powernum eitthvað, en svo er náttúrulega aflraunirnar sem að toga mikið í mig, svo væri ég til í að vinna að þjálfun, bæði einkaþjálfun og jafnvel liðaþjálfun í hinum ýmsu íþróttum, væri til í að ljúka BS í íþróttum og stefna svo á master í framhaldi af því, ég var búin að skoða akademíuna aðeins, en Danmörk heillar mig rosalega mikið, ég hef keppt þar 3 sinnum, og ferðast þangað í 2 önnur skipti. Ég er alveg ástfangin þar af landi og þjóð.
Er námið þá á ensku ? Nei ég held að það sé á dönsku þannig að það er séns að ég fari bara 2008 og verð þá búin að vera hálft ár í dk að læra dönskuna, jafn vel vera í íþróttalýðháskóla að chilla, félagi minn er í þannig og er að dýrka það.
Þannig að þú myndir bara alveg flytja út ?: Já í einhvern tíma amk, ég þekki þarna mikið af liði
t.d. er Gaui tröll sestur að þarna. Elís úr vaxtaræktinni, sem og amk 4 aðrir vinir mínir þannig að það væri fínt að komast þangað. Svo þekki ég 2 dani sem ég hef verið að keppa með úti. Ég á reyndar einn lítinn snáða hérna heima, þannnig að ég myndi alltaf vera með aðra löppina heima.
Hvaða ráð hefurðu handa þeim sem vilja verða stórir og sterkir eins og þú ? Hehehe, hmm, ætli ég myndi ekki segja vera duglegir að æfa, borða, og ekki vera feimnir að spurja sér lengra komna eftir ráðum og þá taka þeim. Ég er td búin að æfa í 9 ár og er enþá að nota mér ráð þeirra sem eru sterkari, reyndari eða jafnvel bara gáfaðari
http://blog.central.is/fossdalurinn
|