Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 07. september 2009 15:31

Hvað er að frétta ? Thelma Ólafsdóttir


Ég er að fara til Sao Paulo i Brasilíu (Suður-Ameríku) að keppa á Heimsmeistaramóti Unglinga hjá IPF í kraftlyftingum þar sem ég mun líklegast keppa í mínus 75kg flokki og taka á því í hnébeygju, bekkpressu og réttstöðulyftu. Ég keppi fimmtudaginn 10.september kl 17.00 að staðartíma. Hægt er að fylgjast með mótinu hér og síðan auðvitað á vodvafikn.net :)
 
 

Hvenær ákvaðstu að fara út á þetta mót ?
Þetta var ákveðið fyrir um ári síðan. Um leið og ég ákvað að keppa á mínu fyrsta kraftlyftingamóti ákvað þáverandi þjálfarinn minn að ég ætti að setja stefnuna á þetta mót og ég gerði það :)
 
 
 
Hvenær hófst undirbúningurinn fyrir mótið og hvernig hefur gengið ?
 

Undirbúningurinn hefur gengið ágætlega, það var í raun engin tími til að æfa að viti eftir síðustu uppkeyrslu fyrir EMU Evrópumóti Unglinga) sem var í sumar og áður en uppkeyrslan hófst fyrir þetta mót þannig að líkaminn er orðin ansi þreyttur og lúin að reyna að taka 95% af maxi á hverri einustu æfingu en hugurinn hefur aldrei verið jafn ferskur og hungraður í meiri þyngdir ! Gemma í Super Gym og Palli Fermetir hafa hjálpað mér alveg rosalega mikið með allan undirbúning fyrir mótið. Undirbúningur fyrir þetta mót hefur aðalega falist í andlega þættinum þar sem lítill tími var til að bæta líkamlegan styrk fyrir þetta mót frá því á Evrópumeistaramótinu, en ég er full sjálfsöryggis og tilhlökkunar :)