Skrifað af: Sunnu Hlín   
Þriðjudagur, 15. september 2009 18:04

Hvað er að frétta ? Inga Björk



Aldur:44
Hæð:159cm
Þyngdarflokkur: -60
Búseta: Eyjafrjarðarsveit
Fædd og uppalin: Fædd á Akureyri uppalin þar og að hluta erlendis.

Hvað er að frétta Inga Björk ? Það er bara allt fínt að frétta af mér búið að vera viðburðaríkt ár. Var að klára nám í vor og byrja í nýju starfi sem kennari fyrir stuttu. Svo er ég að vinna að myndlistinni í hjáverkum og stefni á sýningu í Október svo það er nóg að gera og allt skemmtilegt.

Nú ertu að fara keppa í Kraftlyftingum erlendis, segðu okkur aðeins frá því: Ég er að fara til Noregs þann 16 september að fara keppa á Vestur-evrópu móti I.P.F. í Kraftlyftingum og keppi þar undir merki Kraftlyftinganefndar Í.S.Í. Ég mun keppa í -60kg flokk og í öllum greinum en þetta er í fyrsta skiptið sem ég keppi í hnébeygju.

María Guðsteins bað mig um að koma með og í upphafi vorum við með fullt lið það er 4 konur en svo helltust 2 úr svo við María förum bara tvær. María er að fara keppa í -67,5kg flokki. Við höfum engan með okkur en erum svo heppnar að gamla kempan hann Freyr Aðalsteinsson sem býr þarna ætlar að vera okkur innan handar, bjóða okkur gistingu og aðstoða okkur á mótinu ásamt norskum félaga sínum. Hann meira að segja gekk í það að fá styrk fyrir okkur í formi landsliðsgalla.

Hvenær var þetta ákveðið: María hafði samband við mig stuttu eftir Sunnumótið í sumar og þá var hún búin að fá hinar tvær með sem hefðu verið í -67,5kg og -75kg svo það vantaði einhverja í öðrum þyngdarflokk. Það mega bara vera 2 í hverjum flokk. Og svo þekkir María aðeins til mín þó ég hafi nú ekki verið að gera mitt besta á Sunnumótinu.

Hvernig hefur undirbúningurinn gengið og hvernig ertu búinn að búa þig undir þetta mót: Undirbúnigur hefur gengið vel þrátt fyrir að mikið hafi verið að gera hjá mér á öðrum vígstöðvum. Ég var rétt búin með Sunnumótið og farin að "pumpa" aftur þegar ég þurfti að fara byggja mig upp aftur og passa upp á þyngdina en maður hefur bara gott af því. Uppbyggingin fyrir Sunnumótið hefur bara skilað sér líka því ég hef verið að bæta mig í þessum þyngdarflokk en var áður að keppa í -67,5.

Hvað ertu búin að lyfta lengi ? Ég byrjaði að lyfta árið 1992 og hef lyft með smá barneignar hléum síðan. Reyndar hef ég stundum tekið tímabil þar sem ég hleyp meira og svo tók ég smá þolfimitímabil. Ég fór mjög fljótlega að æfa kraftlyftingar en keppti ekkert í mörg ár var mest í að styðja manninn minn Fjósa meðan hann var að keppa.G

Hvað kveikti áhugan ? Ha ha.. ég segi alltaf að ég byrjaði að lyfta til að geta hitt manninn minn endrum og sinnum fyrstu sambúðar ár okkar því þá æfði hann svo mikið. Svo varð ég bara fljótt háð þessu sjálf. En það var mikið af reynsluboltum að æfa þá í Jötunheimum og ég bý að því að hafa lært af þeim þó maður sé svo endalust að læra eitthvað nýtt.

 Hvenær var þitt fyrsta mótið ? Ég keppti fyrst á Gamlársdagsmóti í bekkpressu og gekk bara vel. Þá var ég þyngri eða í 67,5kg flokki og tók 75,5 sem þá var reyndar Íslandsmet öldunga en það er ekki skráð.

Við vonum að stelpunum gangi vel á mótinu og munum við að sjálfsögðu fylgjast með og fjalla um mótið :)