Skrifað af: Sunnu Hlín   
Föstudagur, 25. september 2009 13:19

Útrás íslenskra Kraftlyftingarmanna heldur áfram ! 

Halldór Eyþórsson
Ljósm.Sunna Hlín

Heimsmeistaramót IPF Öldunga fer fram í Tékklandi dagana 28.sept-3.október næstkomandi og samkvæmt heimildum KRAFT fer Halldór Eyþórson aka Prjóninn út og keppir fyrir Íslands hönd.

Halldór varð fimmtugur á þessu ári og því frábært að halda upp á það með því að skella sér á Heimsmeistaramót.

Halldór er skráður í-82,5kg flokk, miðvikudaginn 30.september. Hægt verður að fylgjast með árangri hans í beinni hér en þetta er forrit þar sem tölur eru uppfærðar um leið og lyftu líkur.

Væri nú gaman ef Kraftlyftingarfélög á Íslandi myndu nota þetta forrit svo hægt sé að fylgjast með þó maður komist ekki á mót og þetta auðveldar þeim einnig að koma úrslitum án netið :)

Á heimasíðu Kraft má finna stutt viðtal við Halldór um feril hans

Aldur og þyngdarflokk: 1959  / -82,5kg flokkur

Félag: Breiðablik

Besti árangur: 770 í samanlögðu (315kg-165kg-290kg)  í -90kg flokki árið 1989    

Árangur á fyrsta móti: 522,5 í samanlögðu (210kg-97,5kg-215kg)  í -75kg flokki

Uppáhaldsgrein: engin spurning hnébeygjan!

Árangur á innlendum mótum: ca 25 Íslandsmeistartitlar í bekkpressu réttstöðu og í samanlögðum árangri

Þátttaka erlendis:  Landskeppni við USA og Skota, Heimsmeistaramótið 1989 5. sæti og EM 3. sæti 1989. EM öldunga 2005 2. sæti 692,5 kg (280-140-272,5) en fékk ekki réttstöðuna gilda sokkarnir voru ekki upp að hnjám

Met: á 14 gild met

Væntingar fyrir næsta mót: að ná að klára með stæl og vera sáttur

Æfingarprógram: Að gera betur en síðast og hafa gaman af. Skoða hvað aðrir eru að gera og læra af þeim sem hafa náð árangri. Ég æfi 4 til 5 sinnum í viku ekki lengi í einu til að verða ekki leiður. Vera duglegur að  prófa nýjar æfingar, einnig er gott að sá hvað þeir nýbyrjuðu eru að gera því oft koma þeir með góðar hugmyndir að nýjum æfingum.