|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Föstudagur, 23. apríl 2010 12:50 |
Þó ég sé búinn að eiga afmæli 51 sinni þá er ekkert mál að halda áfram Hvað er að frétta Sigurkarl Aðalsteinsson ?
Sigurkarl á Grand Prix Osló 2010 Ljósm. Remi Jakobsen - Iform.no
|
Það er mjög gott hljóð í mér fyrir 14 dögum keppti ég á Íslandsmóti IFBB þar sem ég vann gull í +40ára flokki fitness. Eftir mótið var stefnan tekin á Sandefjord Open sem haldið í Noregi viku eftir Íslandsmótið en ég veiktist og var frá í 3 daga svo ég ákvað að sleppa því að keppa og einbeita mér að því að koma mér aftur í form fyrir Grand Prix Osló. Þar keppti ég í -80kg flokki vaxtarrækt en þar var bara boðið upp á opinn flokk (þá skiptir aldur engu máli) og lenti ég þar í 2.sæti og er mjög ánægður með það.
Hver er svona helsti munurinn á svona stórmóti og síðan mótunum hérna heima ? Munurinn á að keppa hér og heima er lang mestur í keppendafjöldanum og þar af leiðandi er styrkur mótsins miklu meiri. |
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 23. apríl 2010 12:50 |
|
Nánar...
|
|
|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Miðvikudagur, 31. mars 2010 00:00 |
Hvað er að frétta Marianne ? Marianne kom eins og þruma úr heiðskýru lofti þegar hún mætti á sitt fyrsta mót árið 2007 en þá mætti hún ótrúlega skorin og keppti í unglingaflokki. Hún hefur svo ekkert keppt síðan á Bikarmótinu 2007 en hefur nú skráð sig til leiks á Íslandsmótið fyrir norðan.
Heyrðu það er bara frábært að frétta :) Er á fullu að undirbúa mig núna fyrir Íslandsmótið um páskana, ásamt því að vera í námi í Háskóla Íslands að læra lyfjafræði. Þannig að það er brjálað að gera, skóli, æfingar og borða.
Nú hefur þú ekkert keppt síðan Bikarmótið 2007. Einhver sérstök ástæða fyrir pásunni ?
- Nei í rauninni engin önnur ástæða en bara leti. Ég tók þátt í Íslandsmótinu þarna um páskana 2007 og svo strax aftur bikarmótinu um haustið og fannst þetta taka frekar mikið á og langaði bara að slaka vel á. Svo er líka rosa erfitt fyrir mig að skera svona niður því ég er svakalegur nammigrís :)
Hver þjálfaði þig fyrir mótið og ertu með einhverja stuðningsaðila ?
-Heyrðu það er hann pabbi minn sem að þjálfar mig, hann gerir fyrir mig snilldarprógrömm því ég verð alltaf að vera breyta til, annars fæ ég fljótt leið á æfingunum. Annars er ég ekki með neina stuðningsaðila, nema kannski mömmu sem er búin að vera ekkert smá dugleg að elda fyrir mig. Mér þykir þau dugleg að nenna standa í þessu með mér :) |
|
Nánar...
|
|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Laugardagur, 27. mars 2010 12:27 |
"Holy shit hvað er ég búin að koma mér í"Katrín Eva sigursæl eftir aðeins 1 ár í fitness  Sigurvegari Figure F class á Arnold Classic 2010 Ljósm. Einkasafn
Katrín Eva kom, sá og sigraði sinn flokk þegar hún keppti á Arnold Classic Amaetur í mars á þessu ári. Arnold Classic er einn stærsti viðburður í fitness og vaxtarrækt á hverju ári og því hlýtur að vera ótrúleg upplifun að vera keppandi á þessu móti. |
|
Nánar...
|
|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Fimmtudagur, 25. mars 2010 15:19 |
Hvað er að frétta Ranný Kramer ? Ranný Kramer sigraði +163cm flokk Fitness á Bikarmóti IFBB 2009  Rannveig Kramer á Bikarmótinu 2009 Ljósm. Sunna Hlín
|
Ég er á fullu að undirbúa mig undir Íslandsmótið sem verður haldið á Akureyri um páskana, en ég tók þá ákvörðun fljótlega eftir Bikarmótið í Nóvember að fyrst ég væri að þessu brölti þá yrði ég nú eiginlega að klára það að fara á bæði mótin. Þetta verður hrikalega sterkt mót myndi ég ætla, það sterkasta sem hefur verið haldið lengi held ég að ég geti fullyrt. Það verða þarna reynsluboltar ásamt því að þarna eru að koma inn stelpur sem eiga að ég held eftir að stimpla sig rækilega inn. Þetta verður svakalega spennandi, mæli með að allir mæti ! :) Hvernig er undirbúningurinn búinn að ganga fyrir þetta mót ? Ég vissi ekki alveg hvar ég stæði í að skera niður þarna fyrir nóvember mótið, því ég keppti síðast 2005 því ákvað ég að taka 12 vikur til að vera alveg viss um að vera tilbúin þegar kæmi að keppni. Þessi tími hentar mér mjög vel þar sem ég verð að taka smá búst daga þ.e. nammi daga + borða þá helst rautt kjöt um helgar aðeins að hlaða mig því maður er nánast eingöngu á hvítu kjöti, fiski og slíku. |
|
Nánar...
|
|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Miðvikudagur, 24. mars 2010 13:28 |
Hvað er að frétta Valdi Kerfis ?Valdimar Ragnar eða Valdi Kerfis eins og hann er nú alltaf kallaður er að fara út að keppa á kjötmóti um helgina svo við ákváðum að heyra í honum hljóðið og spyrja hann út í undirbúninginn fyrir komandi mót. Valdi Kerfis á HM í Las Vegas 2009 Ljósm. Einkasafn
|
Það er allt dásamlegt að frétta. Æfingar hafa gengið nokkuð vel, ég slasaði mig aðeins í hendinni um daginn og þurfti að sleppa nokkrum æfingum meðan það jafnaði sig að mestu. Annars er ég á leiðinni til Finnlands að keppa um næstu helgi. Svo er Íslandsmót hjá IKF Metal tveim vikum seinna. Í framhaldi af því verður farið að stilla sig af fyrir Evrópumót. Svo er stóra verkefnið á árinu heimsmeistaramót í Bretlandi í nóvember en planið er að taka út stóru bætingarnar þar. Einnig gætu dottið inn einhver önnur mót á milli eins og Íslandsmót í deddi / Guttormsmótið og fleira en æfingaplani fyrir EM og HM verður ekki riðlað vegna annara móta. |
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |