Senda í tölvupóst
Laugardagur, 07. júní 2008 00:00

Hvað er að frétta?

Stefán Sölvi Pétursson


Ljósm. subolica.info
Ég fékk boð um daginn á eina stærstu aflraunakeppni ársins. Reyndar bara með 25 daga fyrirvara en é er ekkert smá ánægður að þau vildu fá mig.

Fortissimus er mót sem haldið verður í Kanada 28-29.júní. Þetta mót var sett upp til að bjóða mönnum úr báðum samböndum með það að markmiði að finna þann sterkasta, mesta og besta. Það eru 10 hrikalegar greinar sem verður keppt í á 2 dögum. Mótið verður haldið í minningu Lois Cyr og Jóns Páls.

Þeir sem skráðir eru til leiks eru:
Zydrunas Savickas - Litháen
Misha Koklyaev - Rússland
Andrus Murumets - Eistland
Travis Ortmayer - USA
Derek Poundstone - USA
Magnus Samuelsson - Svíþjóð
Mark Felix - Grenada
Arild Haugen - Noregur
Dominic Filou - Kanada
Terry Hollands - England
Ervin Katona - Serbía
Lois-Philippe Jean - Kanada
Stefán Sölvi Pétursson - Ísland
Svo er einn annar sem ég veit ekki hver er.


Nú varstu með kraftasýningu í Viðey á dögunum, hvað var að gerast þar?
Boris og ég erum stundum að halda kraftasýningar fyrir forvitna ferðamenn. Erum mest í því að sýna eitthverjar þrautir og leyfa túristunum að spreyta sig. Hlægjum svo gríðarlega að þeim þegar þeir geta ekki neitt.