Senda í tölvupóst
Þriðjudagur, 20. maí 2008 00:00

Aflraunirnar að hefjast


Nú þegar sumarið er að ganga í garð og aflraunakeppnir að fara af stað ákvað ég að heyra hljóðið í nokkrum kraftajötnum og athuga hvort menn séu í keppnishug.

Sigfús Fossdal



Ljósm. Sunna Hlín
Hvað er að frétta ?
Það er allt ágætt að frétta, við Ingibjörg eru flutt til höfuðstaðar Íslands, Akureyri, og erum að fíla okkur vel hérna.

Ætlarðu að keppa eitthvað í sumar ?

Það er nóg að gera framundan, ætla að keppa á IFSA Sterkasta manni á Íslandi í Smáralindinni, Vestfjarðarvíkingnum, Aflraunameistaranum og Austfjarðartröllinu. Einnig ætla ég að keppa á Evrópumeistaramóti WPF í Kraftlyftingum og Kanada. Hlakka hrikalega til að keppa úti í kanada, ferðast þangað með góðum hóp af fólki, dvelja í góðu veðri (vonandi), og keppa við góða lyftara, bæði íslenska og erlenda. Verður líka gaman að fá tækifæri til að bæta heimsmet og sjá Ingibjörgu og strákana gera það sama. Þetta verður flott ferð með flottu fólki.



Hjörtur Hjartarson


Ljósm. Sunna Hlín

Hjörtur keppti í fyrsta skipti í aflraunum síðasta sumar og tók þátt í öllum mótum sem IFSA hélt.

Á að keppa eitthvað í sumar ?
Nei ég hugsa að ég keppi ekki neitt í sumar, leyfi mér bara að vera áhorfandi.

Málið er að ég greindist með þrjú brjósklos í lok fyrra sumars. Er reyndar búin að fara í aðgerð og láta fjarlægja eitt, svo að núna legg ég aðaláherslu á að byggja mig aftur upp í rólegheitunum. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem ég þarf að byggja mig upp aftur enda þurfti ég að hafa mikið fyrir því að laga axlirnar á mér eftir 3 aðgerðir. Það er kannski ekkert skrítið að maður sé kallaður Lurkurinn maður er allur lurkum lamin og saumaður saman. Það er náttúrulega hundleiðinlegt að standa í svona veikindapakka, sérstaklega þar sem sumarið í fyrra var mjög gott, enda náði ég svakalegum bætingum en fyrst að Boris getur ennþá æft og keppt þýðir ekkert að væla!




Orri Geirsson


Ljósm. Orri Geirsson

Hvað er að frétta ?

Ég er búinn að vera í verðbréfamiðlunarnámi í allan vetur. Ég æfi núna ca. 5 sinnum í viku oftast með Stefáni Sölva og Boris. Þeir eru með mjög góða aðstöðu fyrir aflraunir í Keflavík á hersvæðinu þ.e. svona gömul her-skemma sem við köllum "The Base". Ég kemst reyndar ekki þangað nema um helgar. Frábært að æfa með mönnum sem eru sterkari en maður sjálfur þá fer metnaðurinn upp og árangurinn er fljótari að skila sér. Ég næ þeim einhvertímann tíman


Nú hefur þú ekkert keppt í kraftlyftingum lengi ?
Það er eiginlega alltaf skóli þegar mótin hafa verið og svo hefur maður bara verið í svona "viðhaldi". Hrikalegt að vera í skóla, mæli ekki með því til lengdar. Ég vona ég nái þessu þar sem mikið er búið að fórna í þetta


Ætlarðu að keppa eitthvað í sumar ?

Í sumar ætla ég að reyna að keppa á öllum mótum sem ég kemst í og reyna að keppa mig í form. Styrkurinn er svona allur að koma aftur en það vantar smá upp á úthaldið, en það kemur.