Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 18. maí 2008 00:00

Hvað er að frétta ?

Boris (Kristinn Óskar Haraldsson)



Hvernig gekk liðakeppnin sem haldin var í Lettland ?
hehe, daninn sem ég var með í liði skeit á sig í flestum greinunum þannig að við enduðum síðastir. Ég átti nú svo sem ekkert stjörnumót en skilaði alveg mínu, er ekki nógu góður til að bera uppi tvo.

Á að keppa mikið í sumar ?
Sumarið er enn svolítið óljóst.við fáum oft ekki boð á alþjóðleg mót nema með kannski 2-3 vikna fyrirvara. Það sem komið er núna er Moskva 14. og 15. júní, Noregur í ágúst, Danmörk í október og svo var Lettland um daginn.

Hvernig er heilsan?
Hún er svona upp og niður, fóturinn dofnar reglulega upp útaf brjósklosinu en svo á hann sína góðu daga líka!

Það ætti ekki að fara framhjá neinum hversu virkur þú ert í forvörnum líkt og Blátt Áfram. Svo las ég líka á síðunni þinni að þú varst beðinn um að taka þátt í vatnsgöngu Unicef.
Unicef vildi fá þjóðþekkta einstaklinga til að taka þátt í þessari vatnsgöngu til að vekja athygli á því hversu dapurt ástandið er í sumum löndum hvað varðar drykkjarvatn. Ég komst til dæmis að því að það deyja 6000 börn á dag úr vatnsskorti eða sjúkdómum tengdum drykkju á óheilnæmu vatni. 6000 saklaus börn sem hafa ekki gert flugu mein og eiga ekkert illt skilið!!! Það er heiður fyrir mig að fá að taka þátt í svona verkefnum og ég vona bara að mitt framlag veki fólk til umhugsunar þessum hlutum.


Viðtalið tók Hjörtur Hjartason