Hvað er að frétta ?Benedikt Magnússon Gemma, Búsó Magnússon Kismann, Benedikt og Monsi (Ljósm. Benedikt) Benedikt er að fara keppa á Arnold Strongman Classic sem haldið er í Columbus, Ohio um helgina og ákvað ég að athuga stöðuna á honum svona nokkrum dögum fyrir mót
Núna eru 3 dagar í Arnold Strongman, hvernig er fílingurinn? Spenntur? Stressaður? Benedikt þekkir ekki stress. Benedikt er búinn að sigra fyrir löngu síðan, og setur á autopilot.
Hvernig er undirbúningurinn búinn að ganga? Ertu ánægður með undirbúningstímabilið ? Benedikt er þyngri sterkari og sneggri en hann hafði vonað. Benedikt bjóst við að verða hægari í þyngri vigtum á því að hafa skipt út svo mikið af hvítum vöðvavef fyrir rauðann súrefnisvef. En er jafnvel sneggri fyrir vikið.
Ertu að gera eitthvað öðruvísi núna en fyrir önnur mót? Benedikt tók lengri tíma í pressured stamina buildup en vanalega. Þ.e.a.s 13 vikur fóru í að setja skjóðuna undir meira álag án þess að auka líkamsvikt eða missa, og missa ekki styrk, en auka súrefnisuppitöku vöðvanna til muna, og fækka snerpudögum niður í 1 í viku. Vanalega hefur Benedikt aðeins gefið 4-6 vikur í þetta, en Benedikt þarf að sigra núna, ekki eftir 10 ár. Svo hann tók áhættuna á að fara yfir 12 vikna slithættumörkin, en hvíla síðan skjóðuna alveg í heila 10 daga fyrir uppkeyrslu.
Á byrjun 15 viku fækkaði Benedikt æfingadögum um helming án þess að minnka kaloríuinntökuna, og fór þá í sömu vigtir og í lok 13 vikna undirbúningtímabilinu í 4 vikur í viðbót (15-19), og stökk síðan upp í vinnuvigtum um 50-100% ofanálagt á 19 viku og setti inn creatine og meiri kolvetni, en um leið gaf lifrinni hvíld frá auka whey prótein meðan hann jók C vítamín um 5 grömm á dag til að minnka slithættu, kalsíum 1400mg, magnesíum 900mg, og eitthvað af D vítamíni til að falla ekki í krampa og eiða óþarfa kaloríum. Síðustu 2 vikurnar fyrir mót æfir Benedikt bara tvisvar í viku til að halda taugaboðonum í réttar hreyfingar en hvílir ekki eins og vanalega. Þetta eru svona einu breytingarnar hjá Benedikt sem hann gerði til að reyna að ná meiri stærð án þess að auka líkamsfitu til muna, og er einnig að vona að geta haft meira þrek í miklar vigtir yfir 2 daga frekar en að vera með þrek í margar greinar yfir 2 daga.
Er einhver að þjálfa þig fyrir mótið eða kemur þetta úr eigin viskubrunni ? Ég er sjálftitlaður sérfræðingur í bætingum, svo er konan mín næringafræðingur.
Hvert er markmið þitt á mótinu? Sigra sem flestar greinar.
Nú er búið að velja 5 greinar fyrir mótið, í hverju finnst þér þú vera sterkastur ? Circus Dumbbell
Hverjir eru hrikalegastir fyrir utan Hr. Benedikt? Pabbi minn. Hann getur allt. Alveg eins og ég.
Treystiru þér til að spá fyrir um topp 5 ? Nei, ég fylgist ekki nógu vel með til að geta metið það. Enda er ég ekki að stefna á topp 5
Ertu með einhverja styrktaraðilar sem hafa aðstoðað þig ? Ég starfa fyrir fyrirtæki sem sérhæfir sig í fæðubótaefnum og leyfi þeim að nota nafnið Benedikt Magnússon í þeirra hag. Annars enga.
Hvað er að frétta af bumbubúanum ? Það er endalaus hamingja og Benedikt vex í ást og hlýju og er óléttur sjálfur og hefur þyngst miklu meira en frúin yfir meðgönguna.
|