Senda í tölvupóst
Föstudagur, 08. júní 2007 00:00

Hvað er að frétta ?

Pétur Bruno Sch. Thorsteinsson


Ljósm. Sunna Hlín


Var að koma frá mínu fyrsta móti á erlendri grundu, sem ég fór á eftir IFSA Sterkasti Maður

Íslands 2007. Ég Goggi og Benni fórum þrír saman og kepptum fyrir Íslands hönd á móti Svíum í liðakeppni. Mótið var haldið vegna íslenskra daga í Stokkhólmi í 25 stiga hita og góðri stemmningu


Það voru 5 greinar:
2 manna dekkjavelta
137kg loggur
350kg deadlift upp á reps
Bændaganga með 160kg í hvorri hendi
Kúlusteinar, þetta voru sleipir steinar 135kg – 135kg – 160kg – 170kg – 180kg


Kepptum á móti þremur Svíum Andres, Björn og Magnus. Ég var léttasti keppandinn 128kg en næsti fyrir ofan mig var 148kg svo það munaði 20kg! Mótið fór þanig að það var jafntefli á milli liðanna, svio við fórum enga fíluferð.


Við hefðum að sjálfsögðu rústað þessu ef Stefán vinur minn hefði komið með en ég var varamaður fyrir hann.


Hvernig finnst þér svo að keppa í aflraununum:
Rosalega gaman en ég á margt eftir ólært - Sjáumst í andanum.