|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Mánudagur, 04. júlí 2011 11:10 |
|
Allt flott að frétta úr mínum herbúðum þakka þér fyrir. Ég er að fara keppa í aflraunum í Bandaríkjunum. Það er mót sem er haldið á hverju ári sem heitir Liberty strongman classic. Í ár verður keppt í 140kg drumbalyftu, réttstöðulyftu á max þyngd, helluburði, dekkjaveltu o.fl. og það eru engir smá keppendur sem verða á staðnum. Brian Shaw sem rétt missti af fyrsta sætinu á sterkasti maður heims í fyrra verður þarna og einnig fleiri sem kepptu í úrslitunum. Þetta á eftir að vera mjög gaman. þetta er einmitt haldið á þjóðhátíðardegi bandaríkjamanna, 4th of July og mótshaldarinn sem hafði samband við mig segir að reynt verði að slá heimsmet í fjölda áhorfenda á aflraunakeppni. Eftir þetta allt kem ég heim og tek mér líklegast smá keppnispásu áður en ég fer að gíra mig upp fyrir að stimpla inn einhverjar bætingar í kraftlyftingum í vetur. Ég stefni á að keppa á amk. tveim kraftlyftingamótum í lok ársins.

|
|
Síðast uppfært: Mánudagur, 04. júlí 2011 12:02 |