Senda í tölvupóst
Laugardagur, 06. september 2008 00:00

Fyrsti Dagur Stefáns Sölva á WSM 2008

Dagur eitt byrjaði illa hjá mér. Fyrsta greinin var hleðslugrein. Tvær 105kg tunnur og tveir 125kg sekkir í sandi 10metra. Þegar ég var á annarri tunnu þá fór þumallinn á vinstri hendi úr lið í augnablik og hrökk svo aftur til baka sem betur fer. Tók svo lélegt tak á sekknum og náði ekki að klára upp á pall. Endaði í 5.sæti af 6. í þessari grein. Læknirinn er búinn að tjékka á puttanum og þetta er allt í góðu. Á morgun er fingal fingers og trukkadráttur og ég vona að ég nái að bæta upp nokkur stig sem ég tapaði. Ég er bjartsýnn á þetta og er í góðum anda. Mark Felix vann greinina í mínum riðli og var eini sem kláraði alla hlutina. Annar var Derek Poundstone, þriðji Jason Bergmann og Jarek Dymek í fjórða. Svo kom ég og Igor Werner.

Kveðja frá USA
Stefán Sölvi