|
Þriðjudagur, 26. ágúst 2008 00:00 |
Stefáni Sölva boðið á WSM 2008Hvað er að frétta, Stefán Sölvi ? Ljósm. subolica.info | Mér var boðið að keppa á WSM sem fer fram í Charleston, West Virginia í USA í byrjun september Riðlarnir fara fram 6.-9.september og úrslitin verða 12.-14.sept. Ég var settur í riðil 1 með Derek Poundstone (USA), Jarek Dymek (Pólland), Mark Felix (England), Jason Bergmann (USA) og Igor Werner (Þýskaland). Það er keppt í 5greinum í hverjum riðli og eru riðlarnir 5 með 6 keppendum í hverjum. Ég veit ekki allar greinar sem riðill 1 fær en það verður allavega réttstöðulyfta, fingal fingers og atlas steinar. Greinar sem skráðar eru á riðlana eru: Hleðsla Kútakast Fingal Fingers Trukkadráttur Hnébeygjugrein Réttstöðulyftugrein Víkingapressa Pressa yfir höfuð Atlas steinar |
7 greinar eru í úrslitinum og þær eru: | Power stairs Fingal fingers Bílaganga Réttstöðulyfta með bíl Pressa yfir höfuð Flugvéladráttur Atlas steinar |
|