|
Fimmtudagur, 25. september 2008 00:00 |
Stefán Sölvi sigrar New Hamshire Highland Games 2008Hvað er að frétta, Stefán Sölvi Pétursson ? Ég keppti síðustu helgi í blandaðri keppni af hálanda og kraftaþrautum í Loon Mountain í New Hampshire í USA. (New Hamshire Highland Games 2008) Keppt var í 45kg steinakasti, 25kg lóðakasti yfir rá, bændagöngu með náttúrusteinum, staurakasti, náttúrusteini yfir höfuð á reps, skjaldarburði, staurakasti á vegalengd og atlas steinatökum. Ég sigraði mótið, Gerard Benderoth í öðru, Mike Zolkiewich í þriðja og Sam MacMahon fjórði.
Pétur Guðmundsson kúluvarpari, ofur lögga og kastþjálfari var að keppa þarna í masters hálandaleikum. Þ.e.a.s. 40 ára plús. Hann endaði í 2.sæti á eftir fimmföldum heimsmeistara Ryan Vierra. Magnús Ver var á svæðinu sem dómari. Kveðja Stefán Sölvi
|