Stefán Sölvi - Ýmislegt árið 2006 Senda í tölvupóst
Föstudagur, 06. október 2006 00:00

Stefán Sölvi Pétursson



Hæð: 194 cm
Þyngd: 150 kg

Stefán Sölvi er án efa einn öflugasti aflraunamaður í Íslandi í dag og vann hann fjórar af fimm afraunakeppnum sem hann tók þátt í á liðnu sumri, þrátt fyrir að vera aðeins tvítugur að aldri ! Einnig fór hann til Skotlands þar sem hann keppti á Hálandaleikum og tveimur dögum seinna fór hann ásamt nokkrum öðrum íslendingum til Úkraínu að taka þátt í Worlds strongest nation sem er liðakeppni.
Stefán hvorki reykir né drekkur, finnst gaman að æfa og borðar almennilega; góð fyrirmynd fyrir unga fólkið !




Hvenær fórstu fyrst að hafa áhuga á kraftlyftingum ?
Ég hef verið með kraftadellu síðan ég var smágutti
Þegar ég var svona 4.ára ég sá Jón Pál, Magga Ver og Hjalta Úrsus í Hagkaup. Þeir voru með sýningu og voru að lyfta einhverju, þá fór ég heim og byrjaði að lyfta dótakassanum eins og í bekkpressu. En síðan svona fyrir alvöru 2003 byrjaði að æfa í Pumping Iron um haustið til að verða sterkari
En síðan í janúar 2004 fór ég í Gym80 til að verða sterkastur


Hvar ertu að vinna ?
Ég vinn bara á nóttunni og kvöldin á Champagne Club
Geri voða lítið annað en að æfa á daginn og éta á kvöldin;)




Með hverjum ertu oftast að æfa ?
Benna, Otra og Magga Ver


Hvernig er svo að vera æfa með Magga Ver, þar sem Hagkaupsstundin átti stóran þátt í áhuga þínum á Powernum ?

Mjög gaman. Það er ekki leiðinlegt að vera að æfa með kallinum sem maður horfði á í sjónvarpinu sem gutti.


 
Austfjarðartröllið


Hvernig var það, vannstu ekki allar keppnirnar sem þú kepptir á í sumar ?
Ég vann 4 af 5 keppnum. Kraftavíkingurinn , Vestfjarðavíkingurinn, Austurlands og Austfjarðatrölliðvar í öðru sæti á Sterkasti Maður Íslands sem við héldum í Smáralindinni.


Á Austfjarðartröllinu vanstu svo kallinn (Magnús Ver) … hvernig var það ?
Það er alltaf gaman að vinna. En það eru 10 ár síðan Magnús Ver var upp á sitt besta. Ef ég hefði ekki unnið hann þá hefði hann aldrei hætt að gera grín að mér.


Austfjarðartröllið þar bætti Stefán Íslandsmetið úr 5.4m í 5.8m -
(ath.það er samt ekki sama hæð og á myndinni)


Eru þetta öll mótin sem þú hefur keppt á í sumar ?
Nei fór til Skotlands 30 júlí á The Higland Games með Benna þar sem ég var í fimmta sæti. Fórum svo til Úkraínu daginn eftir og kepptum í liða keppni, ég, Benni, Goggi og Jón Valgeir, urðum í 6 sæti. Báðar keppnirnar voru 2 daga


Var þetta ekki mikið.. .tvær keppnir á Skotlandi og daginn eftir Úkraína ?
Ég keppti bara í annarri keppninni í Skotlandi, þetta var ekkert svo erfitt bara mjög gaman




Heyrðu var það árið 2005 sem þú fórst til Finnlands ?
Já Nóvember 2005


Hvaða þyngdir reyndirðu við áður en þú fórst í 350 ?
Ég byrjaði á 350kg, fékk það samt ógilt í fyrstu tilraun þar sem dómarinn sagði að það hafi verið svo létt og að ég hafi skolfið eitthvað og það er víst bannað
þannig að ég tók það aftur í annarri tilraun.


Stebbi , Benni og Brúnó í Finnlandi nóv 2005


Nú verður sterkasti maður heims KANNSKI haldið á klakanum í nóvember hvernig gengur undirbúningurinn fyrir það ?
Æfingarnar ganga mjög vel og er ég allur að styrkjast. Ef mótið verður hérna á Íslandi þá keppum ég Benedikt og Georg. En þá koma allir þeir sterkustu, Savickas, Koklyaev , Virastyuk og fleiri sterkir.


Eftirminnilegasta mótið?
Eiginlega bara öll mótin sem ég hef unnið.


Einhver plön um að keppa aftur power eða ertu alfarið búinn að snúa þér að aflraununum?
Ég á eftir að keppa eitthvað í power. En bara mikið minna en í aflraunum. Ég ætla að eiga powerinn í ellinni haha



Sterkasti Maður Íslands í Smáralindinni


Hvað er undirbúningstíminn langur fyrir aflraunamótin ? kemur æfingin kannski bara með tímanum ?
Aflraunir eru öðruvísi en kraftlyftingar að því leytinu til að við keppum mjög mikið frá vori og út haustið. Við þurfum alltaf að vera í formi í marga mánuði og vera mjög sterkir. Maggi Ver sagði við mig ” Stebbi, þú átt alltaf að æfa hrikalega og vera helsterkur! Alltaf!! ”


Ertu með einhverja styrktaraðila ?
Já. Jotun málning og Arnasons networks.


Varstu í einhverjum íþróttum þegar þú varst yngri ?
Já bara svona eins og flestir krakkar. Karate, körfu og fótbolta.



Vestfjarðarvíkingurinn


Einhver önnur áhugamál ?
Ég hef mjög gaman af tónlist.


Að hverju ertu svo að stefna núna?
Að verða sá sterkasti.


Hvaða þyngdum ertu í ?
Bestu tölur sem ég á eru hnébeygja 305kg bekkpressa 200kg og réttstöðulyfta 355kg. Allar lyftur eru teknar á móti.


Uppáhaldsæfing?
Réttstöðulyfta



Vestfjarðarvíkingurinn


Skemmtilegast að gera ?
Æfa, keppa og ferðast.


Uppáhaldsmatur ?
Nautalundir


Hvað ertu svo að éta ? Kannski allt sem að kjafti kemur ?
Kannski ekki alveg allt sem að kjafti kemur. Maður reynir að hafa þetta svona nokkuð hreint. Og hef einn drasl dag í viku. En ég fæ mér alltaf ís fyrir hnébeygju og dedd æfingar! Það er í prógramminu. En ég er byrjaður að læra smá næringarfræði og er að spá í að gera smá tilraunir eftir áramót.


Afhverju ís ?
Það er bara ís fyrir hnébeygju og réttstöðulyftu æfinguna. Þetta kemur ábyggilega frá sögunum af Jóni Páli skófla í sig ís fyrir átökin við Kazmaier. Síðan segist Maggi alltaf hafa étið ís fyrir beygjuæfingar þegar hann bætti sig mest.



Car deadlift – Sterkasti Maður Íslands í Smáralind


Hver eru algengustu byrjendamistök í powernum ?
Gefast of fljótt upp.


Hvað þurfa strákar sem vilja verða heljarmenni eins og þú að gera ?
Hmmm... Æfa éta sofa. Og setja meiningu í það sem þeir eru að gera!


Hvernig er æfingarvikan ?
Í dag æfi ég á morgnanna 4 sinnum í viku og tek þá cardio.
Æfi eftir hádegi 5 sinnum í viku og er þá að lyfta.


Geturðu gefið okkur smá sýnishorn af góðum degi
Vakna
Borða
Æfa (cardio)
Borða
Borða
Æfa
Borða
Borða
Borða
Sofa

Hehehehhe


Getur fólk leitað til þín eftir þjálfun ?
Já. En helst bara fólk sem nennir að æfa og vill styrkjast!


Hver eru svo plönin/markmið fyrir næsta árið í kraft/aflraunum ?
Að vera mikið sterkari en í fyrra að sjálfsögðu og vinna fleiri mót!


Hvað langar þig að gera í framtíðinni ?
Hafa það gott. Og raða inn titlum!


Eitthvað að lokum ?:)
Takk fyrir að vilja hafa viðtal við mig á síðunni þinn.

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 16. október 2008 05:54