|
Laugardagur, 01. mars 2008 00:00 |
Benedikt deddar 500,5kg á Arnold Classic 2008
Hvernig var tilfinningin að lyfta 500,5 kg ?
Merkilega létt. Ég tók 400kg tæp frá gólfi í upphitun, og fanst ég ekki ná að hitna almennilega upp fyrr en í næstsíðustu lyftu. Ég veit ég get tekið meira. En ætla að einbeita mér að því að æfa lyftur frá gólfi, og hafa gaman af því að ferðast núna, er að fara í Brúðkaupsferð.
Hvernig líður þér svo eftir mótið ?
Mér líður rosalega vel. Ég er meiðslalaus, og í góðu formi, og búinn að minka fitu og þyngjast, og nú get ég aftur einbeitt mér að bætingum. Því ekkert er ómögulegt fyrir Benedikt :)
Hvað á svo að gera núna eftir mótið ?
Reyna að halda þessum vöðvamassa sem ég er með. Er ennþá 173kg eftir mótið, og reyna að fá betri taugar í nýju þræðina. Og kanski létta mig niður í 167kg með því að fara niður í 12 % fitu.
Myndbandið !!!!
|