 Ljósm.Sunna Hlín
|
Allt gott að frétta. Er að gera mig kláran fyrir fyrsta mót sumarsins sem verður Svend Karlsen´s Viking Power Challange núna 6.júní.
Æfingarnar hafa gengið ágætlega. Ekki alveg eins vel og ég vildi en ég hef aldrei verið sterkari þegar á heildina er litið.
Það er erfitt að leggja meiri áherslu á eitt frekar en annað svona nálægt aflrauna tímabilinu. Mér hefur gengið frekar vel í pressu greinum en ég skulda bætingar í deddi og beygjum. Ég er líka að einbeita mér að ná upp meira vöðvaúthaldi sem mér finnst vanta hjá mér.
Ég er að æfa með Boris, Heisa og svo hefur Árni Freyr verið seigur að mæta. Svo koma fleiri á laugardögum til að taka á því með okkur. Við erum með aflrauna aðstöðu á heimsmælikvarða sem við erum búnir að leggja mikla vinnu í. Þessi aðstaða er kölluð Beisið þar sem þetta er á gamla hersvæðinu í Keflavík.
Ég stefni á Sterkasta mann Íslands, Aflraunameistarann, Vestfjarðavíkinginn og Austfjarðatröllið hérna heima. Svo er stefnan að sjálfsögðu að komast á World´s Strongest Man með bætingar! Ég er svo bara að vonast til að fá eitthver önnur alþjóðleg mót en það er frekar lítið að gerast í þessu efnahagsástandi. Mig langar mjög mikið að komast á hálandaleika líka!