Viðtal við Stefán SölvaÁ heimasíðu keppninnar Sterkasti Maður Heims er viðtal við Stefán Sölva sem ég þýddi yfir á íslensku til að auðvelda ykkur lífið ;) Hvað æfirðu marga tíma á dag ? 3-4 Hversu oft æfirðu í viku ? 6
Hvernig æfirðu? Mest megnis aflraunaæfingar, en á milli þá æfi ég kraftlyftingar. Ég æfi mig einnig fyrir Skoska Hálandaleika. Hvernig er matarræðið hjá þér ? Morgunmatur: egg, haframjöl og all-bran, Prótein hristingur Hádegismatur: Fiskur eða Kjúklingur, Hrísgrjón eða Pasta Kvöldmatur: Kjöt eða Kjúklingur, Hrísgrjón eða Kartöflur
Hvað kveikti löngun þína i að verða aflraunamaður Jón Páll Sigmarsson - 4 sinnum Sterkasti Maður Heims Hvað varstu gamall þegar þú byrjaðir að æfa og keppa í aflraunum ? Árið 2006 byrjaði ég að æfa og keppa, áður fyrr var ég í Kraftlyftingum Hvert er þitt stærsta afrek sem aflraunamaður ? Að vera boðið á keppnina Sterkasti Maður Heims Hvernig samræmirðu vinnu og æfingar fyrir aflraunamót ? Maður gerir það bara :)
Hver eru þín verstu meiðsli ? Þegar ég reif sin í vinstri tvíhöfðanum í maí 2007. Hvað ætlarðu að gera eftir aflraunaferilinn ? Það eina sem ég hef planað er að njóta lífsins Hverju myndirðu ráðleggja þeim sem langar til að keppa í aflraunum ? Æfðu þyngra, borðaðu meira og betur og trúðu á sjálfan þig. Hver er þín uppáhalds afraunagrein og afhverju ? Náttúrusteina hleðsla. Hvaða aflrauna grein er í minnstu uppáhaldi ? Mér finnst þær allar skemmtilega, jafnvel þótt að ég sé ekki góður í sumum. Hvaða fyrrum aflraunamann líturðu upp til og afhverju ? Jón Páll Sigmarsson afþví að hann var frábær ! Hvaða aflraunamann líturðu upp til og afhverju ? Zydrunas Savickas afþví að hann er sterkasti aflraunamaður allra tíma Hvernig undirbýrðu þig fyrir stór mót ? Æfi af mér rassgatið hahah ( Train my ass off :) ) Hver er þín uppáhalds íþróttagrein fyrir utan aflraunirnar ? NLF amerískur fótbolti Hvað gerirðu til að slaka á ? Áttu þér einhver áhugamál ? Hlusta á tónlist og eyði tímanum með fjölskyldu og vinum Vegna stærðar þinnar, hvað er það fyndnasta sem hefur komið fyrir þig ? Ég hef brotið klósettsetur Hvert er þitt draumafrí og uppáhalds áfangastaður Slappa af í sveitinni á Íslandsi og grilla Einhver mynd í uppáhaldi ? Forrest gump Hvernig bíl áttu og hvernig bíl myndirðu vilja eiga ? Suzuki Vitara en mig langar í Toyota Tundra or Ford Excursion Hvaða persónulega afreki ertu mest stoltur af ? Að komast á Sterkasti Maður Heims 2009 Tölur ? Bekkpressa: 220 kg Hnébeygja: 330 kg Réttstöðulyfta: 370 kg
|