Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Sunnudagur, 07. febrúar 2010 11:38

Skráning hafin á fyrsta mót RAW á Íslandi!

Nú hefur verið stofnað félag á Íslandi sem ætlar að halda kraftlyfitngarmót þar sem einungis er keppt á kjötinu (enginn búnaður leyfður). Það er Magnús Ver sem er stofnandi félagsins hér á landi og ætlar að halda fyrsta mót RAW á Íslandi þann 27.febrúar næstkomandi. Keppt verður í Réttstöðulyftu og fer keppnin fram í æfingarstöð Magnúsar, Jakabóli kl 13.00. Vigtun keppenda fer fram föstudaginn 26.febrúar frá kl 19.00-20.00

Þeir sem vilja skrá sig á mótið hafi samband við Magnús Ver í síma 663-0001 eða senda póst á magnusver63(hjá)hotmail.com

Til gamans má geta að Heimsmetið í 100kg opnum flokki í hnébeygju er 285kg(2009) - 233,6kg(2005) í bekk - 303,1kg (óskráð) í réttstöðu - og 768,8kg í samanlögðu.