Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 05. júlí 2010 12:00

Aflraunasumarið 2010 !

Hérna er listi yfir þau mót sem eru eftir í sumar og þær upplýsingar/keppendalistar sem eru til :)

7.ágúst

Uppsveitarvíkingurinn = OK Búðarmótið

 
Keppendurnir í fyrra
Ljósm. Rakel Lilja

Þá er komið að mótinu sem áður hét Uppsveitarvíkingurinn en nú OK búðarmótið þar sem það verður ferðatölva í vinning. Keppendur sem hafa staðfest komu sínar eru Hafþór Júlíus, Úlfur Orri, Árni Freyr Stefánsson, Ari Gunnars og Georg Ögmunds. Þeir sem vilja skrá sig á mótið geta haft samband við Hjalta í síma 897-8626. Mótið hefst eins og venjan er á dekkjaveltu kl 16.00 á föstudeginum fyrir framan Fjörðinn í Hafnarfirði. Á laugardeginum hefst mótið kl 13.30 við Brúnna á Selfossi þar sem keppt verður í Réttstöðulyftu (Ef það verður rigning þá verður Réttstaðan tekin út og sett önnur grein í staðin). Á Selfoss er haldin Bæjarhátíð á sama tíma og fara hinar greinarnar fram á hátíðarsvæðinu um 50m frá brúnni. Þar verður keppt í kútakasti og Overhead Medley (sirkus dumbell, öxull og nátturusteinn). Mótinu lýkur svo í Hveragerði kl 16.00 þar sem keppt verður í Krossfestulyftu og Medley (Uxaganga, bændaganga og steinatök). Smellið hér til að sjá sundurliðaða dagskrá og keppendalista

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


12.-14.ágúst - Austfjarðartröllið


Ljósm. Sólveig Bjarnar
 
Ekki komin nein dagskrá fyrir mótið
 
Skráning: magnusver63(hjá)hotmail.com
 
 --------------------------------------------------------------------------------------

Mótum sem er lokið: 

5.júní - Sterkasti Maður á Íslandi

Haldin í Grindavík á Sjómannadaginn

Grétar Guðmundsson aka the REAL Big G á IFSA Sterkasti 2008 - Ælti hann láti sjá sig í ár ?
Ljósm. Hjörtur Hjartarson - vodvafikn.net

 

Svo að fólk ruglist ekki þá eru til tvö aflraunamót sem heita nánast það sama. Fyrra mótið sem er haldið heitir Sterkasti Maður Á Íslandi og er haldið af Félagi íslenskra kraftamanna og var hér áður kallað IFSA Sterkasti Maður á Íslandi.

Seinna mótið er mótið sem Jón Páll, Magnús Ver, Boris, Stefán Sölvi og fleiri sterkir menn hafa unni: Sterkast Maður Íslands. En það er úrtökumót fyrir keppnina um Sterkasta Mann heims. Ef þið smellið á myndirnar í fréttinni þá fari þið í albúmið frá því móti

Mótið um Sterkasta Mann á Íslandsi verður haldið á nýjum stað; Grindavík á sjómannadaginn. Skráning: magnusver63(hjá)hotmail.com. Greinarnar sem verða á mótinu; staðfestar af Magga Ver. 

1. Circus dumbell upp fyrir haus

2. Uxaganga og bóndagöngu medley.
Ofur þungt Super Yoke = 450kg á þyngd. Bóndaganga til baka með 170kg í hvorri hönd.

3. Trukkadráttur

4. Réttstaða
Annað hvort upp á reps eða þyngd

5. Kúlusteinn á reps.
Líklegast 160-175kg á þyngd. Jafnvel einn þungur og einn léttari fyrir þá sem ná ekki þunga.

6. Mylluganga./Conans Wheel

8 keppendur eru nú þegar skráðir á mótið og gaman að sjá Heisa aftur á keppendalist en hann slasaðist illa á keppninni Sterkasti Maður Íslands í fyrra og náði ekkert að keppa það sumarið.

Orri Geirsson
Hafþór Júlíus Björnsson
Páll Logason
Óli Valur Guðjónsson
Sturla Ólafsson
Heiðar Geirmundsson
Úlfur Orri Pétursson
Jón Þór Ásgrímsson 

 

19.júní - Kraftavíkingurinn 

Fjörukránni í Hafnarfirði á Víkingarhátíðinni


Kátir karlar - virkilega skemmtileg keppni þar sem allir keppendur
voru mjög mikið berir að ofan, frábært framtak ;)

Ljósm. Sunna Hlín

Mótið í fyrra sigraði Páll Logason en mótið verður haldið á sama stað og undanfarin ár. Keppt verður í tvem flokkum: -105kg flokk og +105kg flokk. Greinarnar verða svipaðar og undanfarin ár en það hefur oftast verið: Kúlusteinn yfir rá, Kúlusteinar upp á tunnur á tíma, Bíla-Réttstöðulyfta, bóndaganga, dumbell yfir haus (nokkrar þyngdir). Skráning: magnusver63(hjá)hotmail.com

 

16.-17.júní - Sterkasti Maður Íslands

Húsdýragarðurinn 16.júní - Miðbær Reykjavíkur og Mosó 17.júní


Stefán Sölvi, Palli og Árni - Hressir í Fjölskyldugarðinum eftir ágang aðdáenda,
áritanir og nokkra snúninga í leiktækjum garðsins
(sjá myndir af þeirri ferð með því að smella á myndina)
Ljósm. Sunna Hlín

Mótið í fyrra sigraði Stefán Sölvi Pétursson. Keppendur sem lenda í þrem efstu sætunum munu komast áfram á Jon Pal Sigmarsson Classic 19.-20.nóvember. Mótið verður svipað og hefur verið undanfarin ár en það verða einhverjar smávægilegar breytingar með greinar og Hjalti lofaði að hnébeygjan væri dottin út. Skráning: Hjalti Úrsus: 897-8626 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
 

Keppnisgreinar:

16.júní - Fjölskyldugarður kl: 15:00
 
1. Maximum réttstaða 4 tilraunir, gæti veið kerra eða eitthvað annað.
2. 25kg lóðakast yfir rá
3. Pressuþraut
Náttúrusteinn 110kg - Öxull 130kg - Drumbur 150kg - Risa handlóð 80kg
4. Hleðslugrein - hleðsla og sleðadráttur
 
17.júní - Vonarstræti Miðbær Reykjavíkur
 
5. Yoke 380kg 30m á tíma
 
17. júní Mosfellbær kl 16:00 / Við Hlégarð
 
6. Risa handlóð 80kg á reps
7. Atlas steinahleðsla
8. Helluburður – Húsafellshellan 
 
Skráðir keppendur:
Benedikt Magnússon
Stefán Sölvi
Páll Logason
Orri Geirsson
Heiðar Geirmundsson
Hafþór Júlíusson

 
 

3.-4.júlí - Viðeyjarjarlinn

Keppendur undir -105kg keppa um hver sé Sterkasti Maður Íslands

Smellið á nánar til að fá allar upplýsingar

Í fyrra sigraði Sturla Ólafsson keppnina en mótið verður haldin í Viðey að þessu sinni og keppnin fengið nafnið Viðeyjarjarlinn. Mótið hefst kl 13.00 og lýkur kl 16.00.
 
Mótið verður svo sýnt á Stöð2sport. Keppnisgreinar. Atlassteinar, 90kg, 110kg, 125kg, 140kg, Bændaganga 100kg. Hönd yfir Hönd/eða Trukkadráttur, Sirkus handlóð 50kg, Ketilbjöllukast yfir rá 5 bjöllur á tíma. Greinum gæti verið breytt á keppnisdag. 
 
Þeir sem vilja vigta sig kvöldið áður geta hringt í Hjalta Úrsus 897-8626, annars verður vigtað um morguninn kl 11:00
 
Keppendur: ath ennþá er hægt að skrá sig á mótið 897-8626
Smellið á nafn keppenda til að skoða prófíl
Andri Björnsson
191cm - 105kg - 1985
Andri Björnsson
Ljósm. Sunna Hlín
Árni Freyr Gestsson
1984
Árni Freyr Gestsson
Ljósm. Sunna Hlín
Daníel Þór Gerana
Geir Jón Geirsson
182cm - 97kg - 182cm
Geir Jón Geirsson
Ljósm. Sunna Hlín
Hafliði Arnar Bjarnason
1993
Hafliði Arnar Bjarnason
Ljósm. Einkasafn
Sturla Ólafsson

Sturla Ólafsson
Ljósm. Sunna Hlín
 
Glæsilegir vinningar í boði fyrir þátttakendur og sérstök verðlaun veitt fyrir sterka gesti! Allir hvattir til þess að taka þátt! Kraftmikill matseðill verður í Viðeyjarstofu. Ferjutollur 1.000 kr fyrir fullorðna og 500 kr fyrir börn 7-18 ára. Nánari upplýsingar fást í síma 533-5055.
 
KEPPENDUR ATH ! þar sem mótið byrjar kl 13.00 væri gott ef þið færuð með ferjunni kl 11.00 (það er frítt fyrir keppendur í ferjuna

8.-10.júlí Vestfjarðarvíkingurinn


Stefán Sölvi og ungur aðdáandi á Vestfjarðarvíkingnum
Ljósm.Sunna Hlín

Hinn hlutinn af Vestfjörðum verður tekinn að þessu sinni og verður m.a keppt á Reykhólum, Tálknafirði og í Vesturbyggð. Skráning fer fram í gegnum tölvupóst: magnusver63(hjá)hotmail.com eða síma 663-0001
 
Dagskrá
Fimmtudagur 8 júlí
 
kl 16.00
Reykhólar
Kútakast
  Herkúlesarhald 
 
Föstudagur 9.júlí
 
kl 11.00
Hnjóti
Steinapressur
kl 14.00
Látrar
Steinatök
kl 18.00
Tálknafjörður
Sundlaugagrein
 
Laugardagur 10 júlí
kl 12.00
Bíldudalur
Réttstöðulyfta
kl 15.00
Patreksfjörður
Sirkus lyfta
  Bóndaganga
 

10 keppendur skráðir

Andri Reyr Vignisson
190cm - 135kg - 1982
Andri Reyr Vignisson
Ljósm. Sunna Hlín
Ari Gunnarsson
186cm - 130kg - 1983
Ari Gunnarsson
Ljósm. Sunna Hlín
Hafþór Júlíus Björnsson
205cm - 172kg - 1988
Hafþór Júlíus Björnsson
Ljósm.Sunna Hlín
Jón Þór Ásgrímsson
198cm - 133kg - 1985
Jón Þór Ásgrímsson
Ljósm. Sunna Hlín
Orri Geirsson
187cm - 125kg - 1977
Orri Geirsson
Ljósm. Einkasafn
Ólafur Valur Guðjónsson
180cm - 120kg - 1984
Ólafur Valur Guðjónsson
Ljósm.Sunna Hlín
Skúli Ármanns
1983
Skúli Ármanns
Ljósm. Sunna Hlín
Sturla Ólafsson
1977
Sturla Ólafsson
Ljósm. Sunna Hlín
Páll Logason
175cm - 140kg - 1986
Páll Logason
Ljósm. Sunna Hlín
Sigfús Fossdal
186cm - 1983
Sigfús Fossdal 
Ljósm. Sunna Hlín
  
 

VAR FRESTAÐ !!! 16.júlí - Aflraunameistari Íslands (AFA)

Kvenna og Karlaflokkar

Á Akureyri dreyma menn stórt - því var reynt að draga flugvél í fyrstu grein

Mótið í fyrra sigraði Sigfús Fossdal en þetta var eina mótið sem hann keppti á það sumarið. Mótið verður haldið á Akureyri eins og venjan er en flest allur keppnisbúnaður búinn til af Jóni Þóri Ásgrímssyni sem er keppnishaldari mótsins fyrir hönd Aflraunafélags Akureyrar. Skráning: afa(hjá)aflraunir.net
 
Keppt verður í Kvennaflokki, -105kg flokki karla og +105kg flokki karla. Allur ágóði mótsins rennur til eineltissamtakann Regnbogabörn.

Skráning: Jón Þór í síma 868-2085 eða afa (hjá) aflraunir.net . Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Dagskrá

Föstudagur

Kvennaflokkur: seinnipart

Mjölnir Réttstaða á undir 100kg á reps
Bændaganga 60kg í hvorri hönd 25metrar
Drumbalyfta 40kg á reps
Uxaganga 150kg - 25metrar
Hleðslugrein 5 hlutir

Laugardagur:

-105kg flokkur karla: morguninn

Bændaganga 100kg í hvorri hönd 25metra
Drumbalyfta - hver tekur þyngst byrjunarþyngd 60kg
Mjölnir hjólbura 25metra
Uxaganga 250kg á 25metra
Hleðslugrein

+105kg flokkur: rétt eftir hádegi

Bændaganga 120kg 25metra
Mjölnir Uxaganga
Mjölnir hnébeygja á reps 300kg
Drumbalyfta á þyngd byrjunarþyngd 100kg
Finegal finger á reps