Skráningu á Fógetamótið lýkur á morgun
Mótaskráin frá fyrsta mótinu árið 2006
|
ÍKF Metal heldur árlega minningarmót um kappann Ólaf fógeta sem stóð á
sínum tíma fyrir stofnun fyrsta kraftlyftingasambandsins á Íslandi árið 1985
og byggði upp kraftlyftingaveldi klakans. Ólafur sem lést fyrir nokkrum
árum var sjálfur mikill íþróttakappi og varð meistari í lyftingum,
kraftlyftingum og glímu. Hann setti nokkuð mörg Íslandsmet í bekkpressu
í 3 þyngdarflokkum frá 82,5kg upp í 100kg flokk og tók 195kg á kjötinu.
Þess vegna er keppt á kjötinu um þennan merka mann. Fógetamótið minningarmót um Ólaf Sigurgeirsson páverfrömuð og
bekkpressara verður nú haldið sameiginlega undir nafni beggja félagana
ÍKF Metal og Raw Ísland. Eftir mótið munu sigurvegar hvers þyngdarflokks
fá viðurkenndar sigurtölur sínar sem Íslandsmet á kjötinu hjá Raw
Ísland. Metal skráir ekki slík met ennþá enda nóg að gera í heimsmetum á
þeim bæ..Skráningarfrestur Fógetetamótsins er til miðnættis í kvöld.
Skráning til:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
og á Kára Catzilla Facebook.
Mótið fer fram í Jakabóli laugardaginn 2 okt. kl.13.00 -Vigtun
keppenda á sama stað deginum áður föstudag kl.13-14 og kl.18-19.
keppnisgjald kr.4.000 greiðist við vigtun.
skráning sendist til: sirmagister (hjá) visir.is
SKRÁNINGARLISTI:
82,5kg.fl. Jón B Viggósson
82,5kg.fl. Ardee Medina
82,5g.fl. Einar Orri Karlsson
82,5kg.fl. Daníel N N
90kg.fl. Stefán Jónsson
90kg.fl. Stefán Logi Sivarson
100kg.fl. Þór Sigurðsson
100kg.fl. Björgvin Friðbjarnarson
100kg.fl. Sigurberg Pálmason
100kg.fl. Skúli Vilbergsson
110kg.fl. Kristján Kröer
125kg.fl. Bjarki Elí Ólafsson
125kg.fl. Sigurjón Ólafsson
125kg.fl. Magnús Ver Magnússon
125kg.fl. Páll Logason
140kg.fl. Eggert Hólm Pálsson
140kg.fl. Jón B Reynisson
140kg.fl. Ari Gunnarsson
140+kg.fl. Hafþór Júlíus Björnsson
|