Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Laugardagur, 02. október 2010 16:12

Afmælismót Viking Gym í kvöld !

Í kvöld fagnar Viking Gym afmæli sínu með því að halda bekkpressumót á Kaffi Akureyri í kvöld kl 20.00. Mótið er einnig góðgerðarmót þar sem öll keppnisgjöld og hagnaður af bolum mun renna til styrktar Hilmari Sigurjónssyni landsliðsmanns í blaki sem lenti í slæmu bílslysi í vor.


Hilmar er 22 ára nemi við Háskóla Íslands. Hann er Íslandsmeistari í blaki og landsliðmaður í greininni. Þó Hilmar sé frá Ólafsvík, þá spilaði hann með liði KA og varð stúdent frá VMA þannig að Hilmar er hálfgerður heimamaður hér á Akureyri. Hilmar hafði sagt mér frá því að hann hafði hug á að komast út í atvinnumennsku, og að það væri gott útlit á það hjá honum í framtíðinni. Þess vegna tók ég það mjög nærri mér þegar ég frétti af því í vor að Hilmar hafði lenti í mjög slæmu bílslysi. Hann fékk stóran jeppa á fullri ferð framan á lítin fólksbíl sem hann var að keyra, og eru allir sammála um að hann sé þó heppinn að vera á lífi. En eðli meiðslanna eru þau að hann getur að öllum líkindum náð sér að fullu og spilað aftur.

Smellið á nánar til að sjá keppendalista og lesa alla fréttina


Þar sem ég þekki sjálfur það að vera íþróttamaður og lenda í meiðslum, þá fórum við að spá hvernig við gætum hjálpað Hilmari. Úr varð að við ákváðum að láta allan hagnað af Afmælismóti Viking Gym í bekkpressu renna óskipt til Hilmars, svo hann geti staðið straum af kostnaði við endurhæfingu. Þetta verður kannski ekki einhver stór upphæð sem safnast, en það er von okkar að þetta hjálpi honum að minnsta kosti eitthvað og hvetji aðra til að hjálpa honum í að ná sér og láta drauma sína rætast.

Kveðja, Sigfús Fossdal

Fyrir þá sem vijla styrkja Hilmar beint bendum við á reikningsnúmerið 1143-26-1506  kt.150688-3109.

Keppendalisti

Kvennaflokkur
-67,5kg flokkur

Sólveig

-82,5kg flokkur

Tóta

+90kg flokkur

Kristín

Karlaflokkur
-75kg flokkur

Helgi Garðar

82,5kg flokkur

Erlingur Guðmunds

-90kg flokkur

Hilmar Henning
Auðunn Trampe

-100kg flokkur

Viktor Sam
Árni Freyr
Atli Jóns

-110kg flokkur

Eyjólfur Unnarsson
Sigurður Kristján

-140kg flokkur

Jón Þór
Erling Tom

+140kg flokkur

Einar Már

Síðast uppfært: Laugardagur, 02. október 2010 16:28