|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Miðvikudagur, 21. október 2009 12:48 |
Námskeið í Bekkpressu
Sunna Hlín, Rúnar & Inga Björg Sunnumótið 2009 |
Það er alltaf eitthvað nýtt og skemmtilegt í deiglunni hjá kraftlyftingarfélagi Akureyrar en nú 1.nóvember hefst bekkpressunámskeið fyrir byrjendur sem lengra komna. Það eru framkvæmdaglöðu hjónin Rúnar Friðriksson og Inga Björk Harðardóttir sem verða kennarar á námskeiðinu en þau hafa gríðarlega reynslu á þessu sviði bæði sem dómarar og keppendur. Námskeiðið er ókeypis og verður haldið tvisvar í viku sunnudaga kl 14.00 og miðvikudaga kl 19.00. Námskeiðið eru þrjár vikur og verður haldið í Jötunheimum, lyftingarsal KFA.
Áhugasamir geta haft samband við Kraftlyftingarfélag Akureyrar með því að senda póst á kfakureyri (hjá ) gmail.com eða í síma 823-8668.
|