Alfreð Pálsson með Come Back !  Íslandsmót IFBB 2007 Ljósm. Einar Guðmann - Fitness.is
|
Alfreð Pálsson hefur keppt 5 sinnum í vaxtarrækt á 10 ára tímabili en hefur nú ekkert sést í tæp 3 ár. Nú hefur hann hafið undirbúning fyrir Íslandsmót IFBB sem haldið verður um páskana.
Nú sá ég þig í Laugum um daginn og varstu orðinn helbreiður hvað ertu eiginlega þungur ? Ég er að sveiflast frá 107-109kg núna og er í mínu þyngsta formi miðað við fituhlutfall. Þú hlítur þá að vera kominn upp úr -90kg flokki ? Ég hef alltaf keppt í -90kg flokki og stefni á -100kg flokk núna. Ég er þó ekkert mikið að stressa mig á hvar ég enda í þyngd, bara láta form og útlit ráða. Mæta bara í mínu allra besta formi :-) Smellið á nánar til að sjá allt viðtalið
Þau mótvaxtarræktarmót sem ég hef keppt á eru:
3.sæti -90kg fl Íslandsmót IFBB 1997 3.sæti -90kg fl Íslandsmót IFBB 1998 2.sæti -90kg fl Íslandsmót IFBB 2005 1.sæti -90kg fl Íslandsmót IFBB 2005 6.sæti -90kg fl Grand Prix Oslo 2007
|
Nú leið langur tími 1998-2005 þar sem þú kepptir ekkert. Var einhver sérstök ástæða fyrir því? Íslandsmót IFBB 2005
Ljósm. Myndrún - Fitness.is
|
Aðal ástæðan var sú að ég fór í skóla í millitíðinni og var eginlega hættur að spá í keppnir. Svo var ákveðið að halda Íslandsmótið á Akureyri og Sigurður Gestsson hvatti mig mikið til að vera með þá þar sem ég bjó á Akureyri. Í kjölfarið af því fór ég að herða æfingar og við það að taka þátt í þessu móti rifjaðist upp fyrir mér hversu gaman þetta er og allt í kringum þetta. Síðasta mót sem þú kepptir á var bekkpressumót. Hvernig gekk þar ? Ég tekið þátt í einhverjum kraftlyftingamótum og núna síðast í fyrra a Gamlársmóti KFA, þar sem bara er keppt í bekkpressu. Tók 222,5 kg.
|