Skrifað af: Sunnu Hlín   
Föstudagur, 23. apríl 2010 12:50

Þó ég sé búinn að eiga afmæli 51 sinni þá er ekkert mál að halda áfram

Hvað er að frétta Sigurkarl Aðalsteinsson ?


Sigurkarl á Grand Prix Osló 2010
Ljósm. Remi Jakobsen - Iform.no


Það er mjög gott hljóð í mér fyrir 14 dögum keppti ég á Íslandsmóti IFBB þar sem ég vann gull í +40ára flokki fitness. Eftir mótið var stefnan tekin á Sandefjord Open sem haldið í Noregi viku eftir Íslandsmótið en ég veiktist og var frá í 3 daga svo ég ákvað að sleppa því að keppa og einbeita mér að því að koma mér aftur í form fyrir Grand Prix Osló. Þar keppti ég í -80kg flokki vaxtarrækt en þar var bara boðið upp á opinn flokk (þá skiptir aldur engu máli) og lenti ég þar í 2.sæti og er mjög ánægður með það. 

 
Hver er svona helsti munurinn á svona stórmóti og síðan mótunum hérna heima ? 

Munurinn á að keppa hér og heima er lang mestur í keppendafjöldanum og þar af leiðandi er styrkur mótsins miklu meiri.

 

 
 
 
 
 
Hvar býrðu ? 

Ég er búinn að búa í Osló í eitt og hálft ár og líkar það vel. Hér hef ég fengið mikla reynslu bæði í sambandi við vaxtarækt og eins í mínu fagi, hárinu og er ég mjög sáttur við að hafa breytt til. Ég er samt að flytja heim í sumar þar sem ég get ekki verið lengur frá börnunum mínum og barnabörnum.

Nú komstu klárlega í þínu langbesta formi á svið um páskana, hver var helsta breytingin á undirbúningnum fyrir það mót ?

Jáhá, þú spyrð hvernig ég náði að koma mér í mitt besta form. Ég bý einn og hef því allan þann tíma sem ég þarf í að æfa. Hér úti kynntist ég svo Tommy Thorvildsen sem er atvinnumaður í vaxtarrækt og var hann alveg ólmur í að sína mér hvernig maður undribýr sig fyrir mót. Aðstoðin skilaði sér mjög vel á allan hátt en hann aðstoðað mig einnig á mótinu hér í Osló. 

 

 


-80kg flokkur Vaxtarrækt á Grand Prix Osló 2010
Ljósm. Treningsforum.no

 

 


Íslandsmót IFBB 2005 - lenti í 6.sæti
Ljósm. Einar Guðmann - fitness.is

Hvenær byrjaðiru að keppa í fitness/vaxtarrækt ?

Ég held að ég hafi keppt fyrst 2002 í fitness og orðið 5 sinnum Íslandsmeistari í 40 ára flokknum held ég hehe :)

 

Hver finnst þér vera helsti munurinn á undirbúningi fyrir mót nú og hér áður fyrr ?

Munurinn fyrir mig á að keppa núna og áður er bara miklu meiri þekking á öllu sem þarf að vita; mataræðið og svo þekkja sjálfan sig og hvernig líkami manns virkar á þessu og hinu fæðinu.

 

Hvernig væri hægt að styrkja fitness og vaxtarrækt á Íslandi ?

Ég hef eiginlega ekki svar við því hvernig við getum styrkt þessar greinar nema reyna að fá fleiri til að keppa og þá deila þekkingu okkar til þeirra sem áhuga hafa.

 

 

Hvað finnst þér erfiðast við að keppa í fitness/vaxtarrækt ?

Það eina sem mér finnst erfitt við að keppa er tímabilið sem maður er að skera sig niður í fitu. Þó að maður hafi gott af því að neita sér um hluti getur þetta tekið verulega á svo að sumir eru ekki í húsum hafandi hehehehe :) Þetta var lang erfiðasti undirbúningur sem ég hef gengið í gegn um, veit reyndar hvað ég gerði rangt en áttaði mig ekki á því fyrr en eg veiktist .

 


Sigurkarl á Íslandsmót IFBB 2010
Ljósm. Sunna Hlín - vodvafikn.net


Hver eru svo næstu markmið eða mót ?

Haha já næsta mót ! Ég var búinn að segjast ætla að hætta núna en hver veit, allavega keppi ég næst í vaxtarækt því þar hef ég möguleika á að bæta mig því ég er það léttur, en eftir allt þetta sem ég gekk í gegnum þá er ég mjög ánægður með minn árángur og þó að ég sé búinn að eiga afmæli 51 sinni þá er ekkert mál að halda áfram að bæta sig og hef ég alltaf jafn gaman af því að fara á æfingu og taka vel á !

Bið að heilsa öllum,

Kveðja, Siddi

Ferilskrá: 

2.sæti -80kg fl. Vaxtarrækt Grand Prix Osló
1.sæti +40ára fl. Fitness Íslandsmót IFBB 2010
7.sæti Athletic Fitness Men Norðurlandamót IFBB 2008
4.-7.sæti Vaxtarrækt karla Bikarmót IFBB 2007
1.sæti +40ára fl. Fitness Íslandsmót IFBB 2007
2.sæti Fitness karla Bikarmót IFBB 2006
3.sæti -85kg fl. Vaxtarrækt Íslandsmót IFBB 2006
1.sæti  +40ára fl. Fitness Íslandsmót IFBB 2006
1.sæti +40ára fl. Fitness Íslandsmót IFBB 2005
6.sæti Fitness karla Íslandsmót IFBB 2004
14.sæti Íþróttafitness karla Íslandsmót IFBB 2003

ATH ! það gæti vantað inn einhver mót

Síðast uppfært: Föstudagur, 23. apríl 2010 12:50