Þriðjudagur, 11. mars 2008 00:00

Hvernig gengur köttið ?

Gauti Már Rúnarsson
29.maí 1973

Gauti Már
Ljósm. Úr einkasafni 


Bara mjög vel. Ég ákvað að taka stutt kött í ár (7 1/2 viku) vegna þess að í fyrra var ég tilbúinn of snemma og missti því svolítinn massa. Ég held að ég nái þessu alveg.


Hvenær byrjaði það ?

Ég byrjaði 28. janúar

Ertu búin að skipta eitthvað um matarprógram á tímabilinu ?

Nei ég er alltaf á sama matarprógraminu. Ég borða mikið af KEA skyri, kjúklingabringum, þorski, broccoli, grape, frosnum jarðaberjum ofl, ofl. Er að borða ca. 2300 hitaeiningar í hlutföllunum 50/25/25 -prótein/kolvetni/fita.

Hvað var fituprósentan þegar þú byrjaðir ?

Ég giska á að fituprósentan hafi verið í kringum 10% þegar ég byrjaði en ég veit ekki hver hún er núna. Ég nota bara spegilinn þegar líður að móti.

Hvaða fæðubótarefni notarðu ?

Ég nota að sjálfsögðu Vitargo vörurnar (Carboloaderinn er algjört möst á æfingu),100% Whey frá EAS, Creatine, fjölvítamín og hörfræolíu.

Hvar ertu að æfa ?

Ég æfi í tækjasalnum Ólafsfirði.

 Gauti Már
1.sæti -80 kg flokki - 1997



Hvað ferðu oft á æfingu á dag og með hverjum æfirðu ?
Ég æfi 1 sinni á dag, 5 daga vikunar og ég æfi einn ( er yfirleitt einn í stöðinni á þeim tíma sem ég æfi).


Hvaða aðferð notarðu við lyftingarnar ?
Ég æfi þungt, 4-6 reps í öllum æfingum og tek aldrei brennslu.


Hefur köttið einhver áhrif á fjölskylduna ?
Nei, í rauninni ekki. Ég á yndislega konu sem hefur stutt mig í mínu sporti í þau 14 ár sem ég hef verið í keppni og svo er það nú raunin að því oftar sem maður köttar, því auðveldara verður það.


Hvernig gengur með Pose - rútínuna ?
Ehem. Er að fara að byrja á henni.


Hver er helsti munurinn á þér síðan á Íslandsmótinu í fyrra ?
Ég stefni á að vera með í -90 flokknum í ár. Er nokkrum kílóum þyngri en á síðasta móti.


Ferill:
1.sæti -80kg fl. Vaxtarrækt Íslandsmót IFBB 2007
2.sæti -85kg fl. Vaxtarrækt Íslandsmót IFBB 2006
1.sæti -80kg fl. Vaxtarrækt Íslandsmót IFBB 2005
3.sæti -80kg fl. Vaxtarrækt Íslandsmót IFBB 2000
5.sæti -80kg fl. Vaxtarrækt Íslandsmót IFBB 1999
1.sæti -80kg fl. Vaxtarrækt Íslandsmót IFBB 1998
1.sæti -80kg fl. Vaxtarrækt Íslandsmót IFBB 1997
2.sæti -70kg fl. Vaxtarrækt Íslandsmót IFBB 1995
4.sæti -70kg fl. Vaxtarrækt Íslandsmót IFBB 1994