|
|
Það gengur mjög vel ég er tilbúinn á sviðið Hvenær byrjaði það ? Ég byrjaði að kötta 7 janúar. Ertu búin að skipta eitthvað um matarprógram á tímabilinu ? Já ég tek þetta þannig að ég byrja frekar rólega og svo fer þetta alltaf úr í meira svelt þegar líður á, ég köttaði mjókur vörurnar út fyrir 3 vikum síðan. Núna reyni ég að halda mig í kringum 2000cal á dag og innan við 20g af fitu á dag, kolvetnin eru á bilinu 200-300g á dag, svo tek ég síðustu kolvetnis máltíðina í kvöldmatnum. Hvað var fituprósentan þegar þú byrjaðir ? Hún var um það bil 8% þegar ég byrjaði..ég er í kringum 5% núna..stefni á 4% á sviðinu. Hvaða fæðubótarefni notarðu ? Ég er að nota nitro-tech hardcore frá muscletech. Svo tek ég vel af vítamínunum t.d. b-12 5000mcg
Hvar ertu að æfa ? Ég æfi í sporthúsinu. Hvað ferðu oft á æfingu á dag og með hverjum æfirðu ? Fer oftast tvisvar á dag, ég er að æfa með Magga bess og Sigga. Hvaða aðferð notarðu við lyftingarnar ? Núna er ég að reyna að halda mig í 8-10reps (halda í kjötið). Hefur köttið einhver áhrif á fjölskylduna ? Hehe ja getur gert það stundum. Hvernig gengur með Pose - rútínuna ? Rútínan er að komast á hreint. Hver er helsti munurinn á þér síðan á Íslandsmótinu í fyrra ? Ég er 5kg þyngri núna og svo er ég að ná miklu dýpri skurði og meiri þroska í vöðvana.
|




