Ljósm. Sunna Hlín Íslandsmótið 2007 |
Það gengur ágætlega, er á áætlun sem ég lagði upp í byrjun undirbúnings.
Hvenær byrjaði það ?
það var 7.janúar
Ertu búin að skipta eitthvað um matarprógram á tímabilinu ?
Já ég trappa niður hitaeiningarna í skurðinum smátt og smátt, þá aðallega á kostnað kolvetna, held próteini og fitu nokkuð eins.
Það sem er á matseðlinum núna er aðallega:
Kjúklingur, túnfiskur, lax, omega 3-6-9 olía, myoplex, haframjöl og hreint skyr.
Hvað var fituprósentan þegar þú byrjaðir ?
Hef aldrei fylgst með fituprósentunni í undirbúningnum þannig ég hef ekki hugmynd. Ég reyni í staðinn að taka myndir með reglulegu millibili til að fylgjast með þróuninni og hvort ég þurfi að herða á eða ekki.
Hvaða fæðubótarefni notarðu ? Úr einkasafni - Íslandsmótið 2007 |
Whey protein.
Myoplex
Creatine
Glutamine
Phosphagen
Diet caps
Nota eingöngu fæðubótarefni frá EAS
Hvar ertu að æfa ?World class laugum.
Hvað ferðu oft á æfingu á dag og með hverjum æfirðu ?Er að æfa 2 tvisvar á dag. Er búin að vera að æfa með Þór Harðar nánast síðan ég byrjaði að æfa
Hvaða aðferð notarðu við lyftingarnar?Ég lyfti eins þungt og ég get allt árið, hef aldrei getað látið neitt annað virka fyrir mig.
 Úr einkasafni |
Hefur köttið einhver áhrif á fjölskylduna ?Ég á sem betur fer mjög skilningsríka fjölskyldu sem styður mig 100% síðan skemmir ekki fyrir að kærastan er líka að skera niður sem gerir matarinnkaup heimilisins frekar einföld.
Hvernig gengur með Pose - rútínuna ?Hún gengur ágætlega er með rútínu sem ég er að vinna í. Markmiðið verður að hafa gaman af þessu og skemmta áhorfendum. Tek samt fram að ég ætla ekki að fara í neina búninga eða e-h slíkt.
Hver er helsti munurinn á þér síðan á Íslandsmótinu í fyrra ?Var í betra formi þegar undirbúningur hóst í ár er einnig búin að bæta 2,5-3 kg síðan í fyrra, kem til með að læra af mistökum sem ég gerði í fyrra og niðurstaðan verður betra form og betri skurðir.