|
|
Gengur bara ágætlega svosem, veiktist reyndar ílla í rúma viku 5 vikur fyrir mót en er ný orðinn frískur. Hvenær byrjaði það ? Ég er búin að halda mér sæmilegum mest allt árið en byrjaði að lagfæra mataræðið rétt eftir áramótin, fór svo alveg í gang 7 janúar Ertu búin að skipta eitthvað um matarprógram á tímabilinu ? Nei skipti ekki um prógram, er ekki með neitt slíkt, borða voðalega svipað allt árið nema hvað að fyrir mót tek ég út hluti eins og sósur skyndimat og kökur, borða eiginlega meira en betra. Hvað var fituprósentan þegar þú byrjaðir ? Mæli aldrei fituprósentu, dómarar gera það ekki heldur. Hvaða fæðubótarefni notarðu ? Nota Mikið af EAS Vörum eins og: Burner light - fitubrennslu drykkur, Thermo Dynamix fitubrennslu töflur, creatin, Myoplex og Myoplex Deluxe, venjulegt whey Protein, carb conrol Prótein súkkulaði, HMB, Glutamín. Er einnig að taka fjölvítamín, B12, B6, 3000mg C vítamín, omega 3-6-9 Fitusýrur, Chromium,"NO boosterar" Hvar ertu að æfa ? Æfi í World Class Laugum, tek svo oft brennslu í Hafnarfirðinum eða Kópavoginum á morgnana.
Hvað ferðu oft á æfingu á dag og með hverjum æfirðu ? Ég tek brennslu flesta morgna og einnig á kvöldin þegar ég er ekki að lyfta, brennslan er frekar létt á 60-70% álagi. Er að æfa með Stefáni Arnarsyni en við höfum æft saman í mörg ár, svo er alltaf einn og einn að detta inn með okkur. Hvaða aðferð notarðu við lyftingarnar ? Ég æfi þungt allt árið eins og ég get, lyfti 2-3 í viku og er með líkaman skiptan í 4 hluta. Hefur köttið einhver áhrif á fjölskylduna ? hmm... ég er svo heppin að kærastan mín er einnig að keppa núna um páskana þannig að við erum bæði á fulli í þessu, en jú auðvitað tekur þetta sinn tíma, verður minna um skemmtanir sem er svosem bara gott.
Hvernig gengur með Pose - rútínuna ? Hef ákveðnar hugmyndir, en er ekki byrjaður að æfa ennþá... þetta er atriði sem ég þarf að vinna í.. Hver er helsti munurinn á þér síðan á Íslandsmótinu í fyrra ? Ég er búin að eiga við nokkuð alvarleg meiðli í ár, sleit td. brjóstvöðva í súmar og er búin að vera mjög slæmur í bakinu og hnám lengi en leitaði mér hjálpar og allt er núna komið á betri veg, þannig að í raun gat ég ekkert æft að fullum krafti í 4-5 mánuði í ár. Helstu áherslurnar í ár voru að bæta bakið og haminn (aftari læri) ásamt því að mæta í mun betra formi en ég gerði síðast sem var auðvitað ekkert nema klúður. Ég hugsa að ég verði aðeins léttari í ár en verð samt mun betri en síðast og líklega í mínu besta formi, stefni á að veita Magga gamla smá samkeppni í ár. Stefnan er svo tekin á norðurlandamótið í haust, ef ég næ að mæta nógu góður núna um páskana og fæ grænt ljós á það frá IFBB.
|





