 Úr einkasafni |
Heyrðu köttið gengur bara sinn vana gang, hægt en örugglega.
Hvenær byrjaði það ? Ég byrjaði bara eftir áramót... nennti ekki að byrja fyrir áramót hehe... það er bara svo gott að borða.
Ertu búin að skipta eitthvað um matarprógram á tímabilinu ?Ég byrjaði í ca. 3500kcal sem eru svo skipt í ákveðin hlutföll eftir próteini, kolvetnum og fitu. Ég minnka þetta svo þegar líður að móti og breyti einnig hlutföllum, þetta byggist aðalega á haframjöli, skyri, olíum, kjöti, fiski, hrísgrjónum... er pínu boozt kall þannig að ég drekk mikið af því... fljótlegt og þægilegt..
Hvað var fituprósentan þegar þú byrjaðir ? Fituprósentan var tæplega 13% þegar ég byrjaði (miðað við minn mælir).. núna er hún eitthvað undir 9% og maður stefnir bara á að komast eins neðalega og maður getur... nenni samt ekkert að vera að pæla of mikið í þessum prósentum endalaust... ég læt bara alltaf sama aðilann mæla mig og sé hvort ég sé að fara niður nóg hratt... það er hægt að láta mæla sig með 10 mismunandi fitumælingartækjum og maður fær aldrei sömu niðurstöðuna...
Hvaða fæðubótarefni notarðu ?  Úr einkasafni |
Ég er að nota Sci-Mx fæðurbótarefni frá Bjössa og einnig Vitargo carbloader á æfingum. sci-mx.is - vitargo.is
Hvar ertu að æfa ? Ég æfi í World Class.
Hvað ferðu oft á æfingu á dag og með hverjum æfirðu ? Fer að brenna kl 6 á morgnana og lyfti og seinnipartinn er að fara kannski 10x í ræktina í viku.
Hvaða aðferð notarðu við lyftingarnar ? Ég er að lyfta þungt ca. 6-8 reps.
Hefur köttið einhver áhrif á fjölskylduna ? Ég er nú bara einn þannig að ég er góður