|
Mánudagur, 01. október 2007 00:00 |
GAZ-MAN í Eurovision
 |
Það er nú ekki á hverjum degi sem við fáum að sjá helmassaða menn í sjónvarpinu, hvað þá íslensku sjónvarpi. En það gerðist nú samt um daginn þegar Garðar Ómarsson, eða GAZ-MAN eins og hann kallar sig, vaxarræktarkappi keppti í undankeppni Eurovision
Hvernig kom það til að þú varst með í þessu lagi ? Vegna leyndra sönghæfileika eða hreinlega vegna kjötsins ? Aðallega hvað eg er góður að syngja... Ég og Gillzi (Egill Einarsson) erum búnir að æfa okkur mikið saman í tónlistinni.. Þar sem hann glamrar á píanóið og ég hamast a trommunum og syng... Annars spurði ég þá aldrei um ástæðuna.
Nú komust þið áfram í úrslitakeppnina, ertu bjartsýnn á að þið farið fyrir Íslands hönd í Eurovision ? Ég er alltaf bjartsýnn. Við erum með geggjað gott lag sem ég held að muni ganga mjög vel. Við myndum allavega vera Íslandi til sóma og stela athyglinni þarna úti þar sem allir munu fá þetta lag á heilann, rífa sig úr að ofan og syngja"hey, hey, hey, we say ho, ho, ho"
Nú ertu að fara keppa á Bikarmótinu 24.nóvember, hvernig hefur undirbúningurinn gengið ? Bara vel, er i fínu formi þannig að ég ætla vinna þetta núna! Mun keppa 100 kg á sviði.
Hver er helsta breytingin á þér síðan í apríl ? Bara allur betri. Gerði smá mistök fyrir síðasta mót sem ég ætla ekki að gera aftur. Þannig að ég býst við að koma harðari og aðeins stærri inn núna
Hverju megum við búast við á mótinu ? Rosalegri sýningu
|