|
|
Það er alltaf svo gaman að grúska um á internetinu. Rakst á þessar myndir og ákvað að fá Kára til að segja okkur aðeins frá Vaxtarræktar árunum. Ég keppti 4 sinnum á Íslandsmóti í vaxtarrækt...1983-1986-1992-1995..öll skiptin gull í -70kg flokki...þannig að kreppuferill minn spannar 12 ár. Yfirleitt tók ég viku megrun fyrir þessi mót en lagði harðar að mér á síðasta mótinu 1995 þar sem ég tók bæði tæknisköfun og megrun í 2-3 mánuði en það misheppnaðist eitthvað og ég náði ekki góðum skurði en var vel "yfirmassaður" eins og Sveinbjörn rauði orðaði það. Ég var 42 ára 1995 sama ár og ég tók mitt besta á bekk 195kg. Eg deddaði einnig 290kg þetta ár sem ég bætti svo þegar ég var 48 ára...ég ákvað samt að keppa ekki meira í kreppunni þar sem ég fann fyrir því að ég var orðinn öldungur í sportinu þar sem ég var farinn að keppa við syni andstæðinga minna sem ég var t.d. að tefla við á mótum á þeim tíma.... ![]()
|




