Skrifað af: Sunnu Hlín   
Föstudagur, 15. júní 2007 00:00

Hrönn Sigurðardóttir

 

Hrönn Sigurðardóttir
Ljósm. Einkasafn

 
Hæð
: 168

Fæðingarár: 1978

Ferlisskrá:
Bikarmeistari 2006 Vaxtarækt
2.sæti +164cm flokki Bikarmót 2006
Íslandsmeistari í vaxtarækt 2007
2.sæti í Vaxtarækt á Norska Grand Prix 2007

Keppnisþyngd: 55-57 kg

Off season: 61 kg

Æfingarstöð: World Class

Æfingarfélagi: Eva í Icefitness :)

 

Hjúskaparstaða: sambúð

Atvinna: Eigin rekstur

Styrktaraðilar: Nings, Bónus, Snyrtistofan Mizú, Casall, Paul Mitchell, Böddi Klippari, Sohosól, Eas og Asics skór.

Staður: Reykjavik

Ég er úr sveit að norðan og æfði frjálsar sem barn og unglingur. Ég var mikið í íþróttum á þessum tíma og þótti bara nokkuð hraust. Ég á yndislegan 4 ára strák úr fyrra sambandi og maðurinn minn tvö úr sínu svo í dag erum við 5 manna fjölskylda. Áhugamál mín utan við vaxtaræktina eru aðallega tónlist og er ég með lítið studio heima þar sem ég syng og spila og sem tónlist á piano og gitar.


Fæðurbótaefni í uppáhaldi:
Ég borða EAS mikið á daginn og elska að fá mér ískalda myoplex fernu og protein súkkulaði. Ummmm peanutbutter.....

Skemmtilegasta sem þú veist um/gerir?
Það er svo margt, en efst á blaði er að vera með börnunum okkar svo auðvitað syngja og spila.


3 orð sem lýsa þér:
Maðurinn minn fékk að svara þessari og sagði:Jákvæð, glaðvær og heiðarleg ☺

Hvenær byrjaðirðu að æfa ?
Ég byrjaði að lyfta í júní 2005. Ég fór ekki að lyfta fyrr en ég kynnist manninum mínum og hann dró mig af stað og er ég búin að vera á fullu síðan með þessum ljómandi árangri hehehe....

Hver er munurinn á að keppa í Vaxtarrækt og Fitness ? (er þetta ekki bara eins og fitness var, með dansrútínu ? eru einhverjar aðrar áherslur?)
Mörgum finnst þetta örugglega mjög svipað, en Vaxtaræktin var byrjuð löngu á undan fitness og var þá mikið kjöt, rútína og „helkött“ það sem var boðið uppá. Fitnessið kom svo og átti að vera svona vægara og stíla inn á kvennleika og komu keppendur meira að segja fram í kjólum fyrstu árin. Í dag finnst mér línan alltaf vera að þynnast þarna á milli því kröfurnar eru orðnar meiri um meira kött í fitnessinu. Í vaxtaræktinni eru svo samanburður með skyldupósum sem felst í 9 mismunandi pósum og frjáls stöðulota þar sem keppandinn semur rútínu við tónlist þar sem 5 skyldupósur þurfa einnig að koma fram. Svo má nefna að mikill munur á keppnisfatnaði því t.d má ekki vera með neitt skart né glimmer og auðvitað ekki í skóm í vaxtaræktinni heldur er einungis leyft að vera í einlitu bikini sem er sniðið eftir vissum reglum.

Hafðirðu keppt í fitness áður ern þú fórst í vaxtarræktina ?
Nei það hafði ég ekki gert og var bikarmótið mitt fyrsta mót. En ég var hægri hönd Heiðrúnar systurminnar í mörg ár og hrærðist mikið í þessu sporti í gegn um hana.

Hvers vegna heldur þú að það sé svona lítil þátttaka í vaxtarrækt kvenna ?
Það er ekki gott að segja. Ætli það hafi nokkur þorað í Möggu massa á sínum tíma.

Nú eru þið systurnar báðar í þessu. Var það óvart eða smitaðist þetta ?
Ég hjálpaði Heiðrúnu systir minni í mörg ár og dáðist að dugnaðinum í henni og fannst þetta voða gaman þar sem ég setti saman tónlistina fyrir hana og sömdum rútínurnar saman. Síðan hönnuðum við búninga og bikini og svo auðvitað greiddi ég og málaði ég hana í mörg ár. Núna er hún svo sjóuð í þessu stelpan að ég varð óþörf svo ég ákvað að prufa þetta bara sjálf hehehe....

 

Æfingarvikan:

Mánudagur: Brjóst og axlir

Þriðjudagur: fætur

Miðvikudagur: frí

Fimmtudagur: tvíhöfði og þríhöfði

Föstudagur: bak

Klukkutími í hverja æfingu og tek magann alltaf með

Líkamspartur í uppáhaldi:
Upphandleggir

 
Hvað tekur þú langan tíma í undirbúning fyrir mót ?
Ég hef verið að taka 10-12 vikur og herði ég verulega á mataræði og smám saman fer að auka endurtekningar í æfingum. Ég hef aldrei tekið brennsluæfingar heldur byggi ég alfarið undirbúninginn í mataræði og lyfta þungt en mörg reps.


Finnurðu fyrir einhverjum fordómum ?
Ég finn aðallega fyrir því tvær síðustu vikurnar fyrir mót því þá beiti ég mig „heraga“ híhí.


Hver er algengasta spurningin sem þú færð ?
Hvernig geturu borðað hrísgrjón og þurran kjúkling í allan þennan tíma. Ég fæ þessa spurningu mjög oft en fólk gerir sér ekki grein fyrir því að þetta kemst í vana eins og allt og verður ekkert mál. Svo er ég að borða fjölbreyttan mat þó hann sé bara öðruvísi eldaður en venjulega

Hvernig fólki finnst þér best að æfa með ?
Jahh ég hef alltaf æft með manninum mínum og þar sem við rekum fyrirtæki saman getum við alltaf skotist saman í Silfursport. Hann hvetur mig áfram og sýnir mér mikinn stuðning, sem er nauðsynlegt ☺

 
Hver er svo stefnan Hver eru framtíðarplönin ?
Ég stefni á að gera góða hluti áfram í vaxtaræktinni og hver veit nema ég gefi út plötu!!! Það er allavega hægt að láta sig dreyma um það.

 
Á að keppa eitthvað úti á næstunni ?

Nei ekki á næstunni.


Næsta mót?
Bikarmótið í haust

Nú varstu að keppa í Noregi fyrir stuttu, hvernig var það ?
Noregur var bara snilld. Vaxtaræktin var haldin á laugardeginum og vorum við fjögur að keppa þá. Ég var ein í mínum flokk og var því sameinað í einn opinn flokk þar sem keppinautur minn var ein í þyngri flokknum líka. Hún er.... jahhh hvað getur maður sagt annað en STÓR ☺ Það munaði ekki nema 13,5 kg okkur og hún er samt lægri en ég. Tilfinningin er mögnuð að standa á sviði erlendis fyrir Íslands hönd og var forkeppnin haldin um daginn þar sem við fórum í samanburð og úrslitin svo um kvöldið. Þá tókum við rútínuna, samanburð og svo posedown í eina mínútu þar sem ég sló bara á létta strengi og flengdi keppinaut minn í orðsins fyllstu merkingu, með báðum höndum!! Salurinn sprakk úr hlátri og einn dómarinn kom til mín eftir keppnina hlæjandi og sagðist hlakka til að sjá þetta atriði aftur á DVD disknum sem er alltaf gefinn út eftir keppnina. Alltaf gott að vita það eftir á!!! Dómararnir voru mjög ánægðir með mig og var mér sagt að ég hafði tapað með aðeins einu stigi sem var frábært. Það sem vann með mér var rútínan og kvennleikinn sem hin hafði minna af enda sögðu þeir við mig: „ we like you, you still look like a woman!“ ☺

Ertu komin til að vera ?
Já ég er rétt að byrja! ☺