Fimmtudagur, 05. mars 2009 19:31

Toney Freeman - The X Man

The X man snýr aftur, stærri en nokkru sinni !


Ástæða þess að Toney Freeman er kallaður The X men er vegna þess hve líkami hans minnir á bókstafinn X. Risastórar axlir sem renna niður í 81cm mitti sem svo springur út í risastór læri.

Toney Freeman fékk fyrst áhuga á vaxtarrækt þegar hann horfði 12 ára gamall á myndina Pumping Iron með Arnold. “Ég var horaður krakki” segir Toney, “Þegar ég lauk grunnskóla var ég  189cm og 70kg. Toney var mikið í íþróttum, og spilaði ruðning og körfubolta í grunnskóla en körfuboltinn hentaði honum betur svo hann hélt áfram að spila hann framhaldsskóla.

Árið 1988 sýndi kærastan hans honum mynd af vini sínum sem var vaxtarræktarkappi. Myndin heillaði Toney og fljótlega var hann farinn að lyfta.

Þegar Toney fór fyrst að spyrjast fyrir um ráð var honum sagt að hann væri of hávaxinn, of grannur og ef að hann myndi reyna fyrir sér í vaxtarræktinni myndu fæturnir á honum alltaf minni á kjúklingalæri en Toney var þrjóskur. Hann fór strax að vinna í að stækka á sér lærin. Hann dýrkaði vaxtarræktargoðin Lee Haney og Flex Wheeler, en það var ekki fyrren hann sá Kevin Levrone árið 1991 sem hann ákvað að gerast atvinnu vaxtarræktarkappi.

Árið 1993 vann hann sitt fyrsta áhugamannamót. Toney var fljótur að vinna sig upp á áhugamannamótunum og varð fjórði á landsmótinu árið 1994 og 1995.  Eftir þessar keppni sleit hann brjóstvöðva og var ekki viss um hvort hann myndi keppa aftur. Eftir 5 ár ákvað hann að fara í aðgerð til að laga vöðvann og reyna aftur við vaxtarræktina.

Reglur sem venjulega gilda um flesta íþróttamenn, gilda ekki um Toney.  Hann er hvattning til þeirra sem hafa heyrt að þeir séu of háir, of grannir, of gamlir(Toney er að verða 43ára) eða séu bara ekki í nógu góðu formi til að geta keppt.  “Markmið mitt var alltaf að verða atvinnu vaxtarræktarkeppandi og ég ætlaði að láta það gerast sama hvað allir sögðu.” Þetta var erfiður tími en 2 árum seinna náði hann loksins markmiðinu.

Um þessar mundir er Toney að keppa við bestu vaxtarræktarkeppendur í heimi hvenær sem honum gefst færi á því. Hann keppti fjórum sinnum á Arnold Classic og árið 2007 komst hann í top 3 sætin. Toney finnst gaman á Arnold Classic, “Það er svo frábært að sjá alla þessa íþróttamenn sem eru bestir í sinni íþrótt” Hann hitti aflraunamannin Mariusz Pudzianowski í fyrra. “Hann er virkilega svalur, þegar ég var búinn að keppa varð ég eftir og horfði á aflraunirnar.  Toney er einnig aðdáandi UFC (Ultimate fighting championsship)

Fyrir utan vaxtarræktina þá er Toney að hjálpa stofnun sem hjálpar umhirðulausum og misnotuðum börnum. Hann er einnig einkaþjálfari og fjárfestir í fasteignum í heimabæ sínum Atlanta. Honum finnst gott að eyða tíma með fjölskyldu sinni, konunni sinni Kelly og þremur sonum; Antonio 5 ára, Neko 19 ára og Montrae 20 ára. “Ég og synir mínir æfum og höngum saman líkt og félagar, þeir eru líka góðir rapparar. “

Að hjálpa öðrum að æfa er einnig eitt af áhugamálum Toney. “Ég hef 20 ára reynslu, ég veit hvað á að gera og hvað ekki,” segir hann. “Nýgræðingar í fitness þurfa ekki að æfa 7 daga vikunnar. Setjið stutt markmið og hvetjið ykkur áfram, maður fær til baka það sem maður leggur í þetta.”

“Mig langar til að þakka öllum þeim sem trúði á mig. Dave Palumbo hvatti mig með því að kenna mér að hafa æfingarnar einfaldar, það er ekki til nein leynivopn, manneskja sem leggur sig fram og leggur tíma og orku í þetta mun ná árangri. Ég vil líka þakka konunni minni Kelly og Mary Christine og öllu frábæra fólkinu hjá Cytogenix, Flex and Muscle & Fitness Magazines.”
 
Þýtt af heimasíðu Arnold Classic