Fimmtudagur, 05. mars 2009 20:18

Branch og Trish Warren keppa saman á Arnold Classic


Branch Warren, sem varð 34 ára 26.febrúar síðastliðinn, og Trish Warren munu bæði keppa á Arnold Classic. Branch keppir á sínu fjórða Arnold Classic móti í vaxtarrækt á meðan Trish keppir í fyrsta skipti á Fitness International keppninni.

Parið hittist í fyrsta skipti í æfingarstöð í Dallas, Texas. “Vinur minn sem vinnur í stöðinn sagði mér að flott stelpa væri byrjuð að æfa í stöðinni og nokkrum dögum seinna rakst ég á hana,” segir Branch. “Ég var að æfa fyrir keppni á þessum tíma, en í fyrsta skipti sem ég sá hana sagði ég henni að hún yrði konan mín einn daginn.”

“Það tók mig 5 ár að sannfæra hana um að kyssa mig, en ég gafst aldrei upp og þetta gekk eftir.”
Branch Watten er einn af bestu vaxtarræktarköppum í heimi. Hann hefur keppt á Arnold Classic síðustu þrjú árin og gekk best árið 2006 þegar hann varð í öðru sæti. Hann sigraðði NPC landskeppnina árið 2001 og New Yrok Pro árið 2007. Hann er nú að stefna að sínum fyrsta Arnold Classic titli.  “Ég hef lent í öðru sæti á þessu móti áður og ef ég á einhvertíma eftir að vinna það, þá er þetta árið,” segir hann. “Ég hef alltaf bara tekið eitt mót í einu og nú er ég tilbúinn að sigra Arnold Classic.”
 


Trish var himinlifandi þegar hún fékk sitt fyrsta boð á Fitness International keppnina. Boðið var algjörlega hátindur ferils hennar sem atvinnukeppandi sem hófst árið 2002. “Þegar ég byrjaði að keppa, sigraði ég öll mót sem ég keppti í og út frá því varð ég alveg háð þessu,” segir hún. “Markmið mitt síðan ég fékk atvinnukortið(pro card) árið 2002 hefur verið að vinna atvinnukeppni. Þetta er fyrsta skiptið mitt á Arnold Classic og ég er mjög uppi með mér að hafa verið boðið að keppa.

Branch og Trish Warren eru eiginlega alltaf saman þar sem þau vinna saman og æfa saman. Parið á saman flutningarfyrirtæki sem heitir Maximum Logistics en það flytur farm út um allan heim. “Við notuðum peningana sem Branch vann fyrir að vera í öðru sæti á Arnold Classic 2006 og við stofnuðum fyrirtækið,” segir Trish.

En með æfingar segir Trish, “Við æfum ekki saman, en við æfum í sömu stöð á sama tíma.  Við tökum brennslu saman en síðan fer Branch og gerir sitt og ég geri mitt.”

Þar sem við æfum saman, borðum við einnig saman, segir Trish. “Margir halda að tveir einstaklingar sem eru á ströngu matarræði sé algjör martröð. En við erum að vinna saman og skiljum hvort annað. Fólk skilur ekki hvað þarf til að komast á það stig.
 

 
Þegar þau koma til Columbus mun Branch eltast við draum sinn um að sigra Arnold Classic á meðan draumur Trish um að keppa á Arnold Classic mun rætast. 
 
“Það hefur alltaf verið draumur minn að keppa á Arnold Classic,” segir Trish. “Fyrsta atvinnukeppnin sem ég sá var árið 2000 á Arnold Classic og þá vissi ég að einhvertíma myndi ég vera á þessu sviði, þótt að ég hefði aldrei keppt áður.”
 

Þýtt af heimasíðu Arnold Classic


Síðast uppfært: Fimmtudagur, 05. mars 2009 20:31