Viðtal við Guðmundur Bragason
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Fimmtudagur, 24. júlí 2008 20:35


Aldur: 42 ára
Hæð: 178

Off-season þyngd og keppnisþyngd ?
Off-season 93-94kg í keppni 89-90kg

Styrktaraðilar: Proteinfabrikken, MXDC

 

 

 



 Ferilskrá:

2.sæti -75kg Unglingafl Vaxtarrækt 1986
2.sæti -80kg fl Vaxtarrækt 1988
1.sæti -90kg fl Vaxtarrækt 1990 + overall
1.sæti -90kg fl Vaxtarrækt 1994
1.sæti -90kg fl Vaxtarrækt 1995 + overall
1.sæti -90kg fl Vaxtarrækt 1996
1.sæti -90kg fl Vaxtarrækt 1997
1.sæti -90kg fl 1998
1.sæti öldungaflokki Vaxtarrækt Íslandsmót IFBB 2008
1.sæti -90kg fl Vaxtarrækt Íslandsmót IFBB 2008
2.sæti -90kg fl Vaxtarrækt Grand Prix Osló 2008 

 

Æfingastöð: ELIXIA CCvest Oslo

Æfingafélagi:
Enginn því miður, æfi yfirleitt um miðjan daginn þegar ég hef pásu í vinnunni og þá eru flestir aðrir í vinnu.

Atvinna: Einkaþjálfari

Áhugamál: Skíði, líkamsrækt, bílar

Hvernig kviknaði áhuginn?
Það voru tveir félagar mínir sem drógu mig með sér á æfingu í Orkulind.

Hvenær byrjaðir þú að æfa og Varstu strax heillaður að vaxtarræktinni?
Byrjaði að æfa 9. maí 1984. Ég heillaðist ekki strax af vaxtarrækt, byrjaði að æfa til að bæta á mig smá kjöti því mér fannst ég allt of mjór en vegna þess að ég hafði svo lága fituprósentu sá ég árangur mjög fljótt og þá var ekki aftur snúið, mikið vill meira.

 

 

Hvernig byrjaði þetta allt saman ? Hvernig datt þér í hug að fara keppa?
Það var mikill andi í Orkulindinni í gamla daga og um leið og vöðvatutla sást á einhverjum var pressan sett í gang. Ég ætlaði að keppa í fyrsta skipti 1985 ári eftir að ég byrjaði að æfa en sem betur fer hætti ég við það.


Hver var helsta fyrirmynd þín þegar þú varst að byrja í vaxtarrækt/fitness?
Á þeim tíma var það Lee Haney sem var stærsta nafnið en Schwarzenegger bar náttúrulega höfuð og herðar yfir alla aðra.


En í dag ?
Í dag á ég mér enga sérstaka fyrirmynd í sportinu, reyni bara að gera það besta sem ég get sjálfur.


Hver eru framtíðarplönin ?
Æfa eins lengi og ég get og keppa ef mig langar. Nú orðið er vaxtarræktin hjá mér bara áhugamál sem ég hef gaman af. Ef ég lendi í því að þurfa að pína mig á æfingar vegna þess að ég er að fara að keppa eða pirrast út í allt og alla í af því að ég er að kötta þá er þetta ekki þess virði lengur, ég geri þetta vegna þess að ég hef gaman af því.


Hvernig væri hægt að styrkja vaxtarrækt/fitness á Íslandi ?
Þegar vaxtarræktin var hvað vinsælust á Íslandi voru um 40 keppendur á mótunum. Þá voru beinar útsendingar í sjónvarpi, fjallað um mótin í öllum blöðum og sjónvarpsstöðvum og keppendur voru í viðtölum á öllum útvarps- og sjónvarpsstöðvum, verðmæti verðlauna á mótum voru á bilinu 1,5 til 2 milljónir (fyrir yfir 10 árum síðan) og sætin seldust upp á 30 mínútum. Nú er varla minnst á þetta í fjölmiðlum, við fáum 1 bikar og þurfum að mér skilst að greiða sjálf fyrir keppnisferðir erlendis. Nú hefur verið stofnað félag keppenda og áhugamanna og mér finnst að fulltrúar félagsins og mótshaldarar ættu að setjast niður og ræða saman um hvað hægt sé að gera og leggja upp plan þar sem allir aðilar vinna saman og leggja sitt af mörkum til að koma mótum í fjölmiðla því það er klárt að fyrir Einar og Sigga sem búa á Akureyri er ekki létt að pressa á fjölmiðla sem eru allir staðsettir í Reykjavík en þar gætu keppendur og áhugamenn komið sterkir inn og hjálpað til í staðinn fyrir að sitja hver í sínu horni og röfla yfir því að ekkert sé gert fyrir þá. Þetta gerist ekki af sjálfu sér og það þurfa allir að leggjast á eitt ef það á að vera hægt að auka áhugann. Það sem keppendur geta gert t.d. er að vera með lifandi og vandaðar pósur því það er það eina sem venjulegt fólk nennir að horfa á frá vaxtarræktarmótum og hana nú 

   

 

 

Uppáhalds æfing og líkamspartur ?
Uppáhalds æfing er hnébeygjur en uppáhalds líkamspartur er brjóst.


Hvað tekurðu langan tíma í undirbúning fyrir keppni?
Áður fyrr tók ég 6 vikur í kött en núna síðast tók ég 12 vikur því það voru 10 ár síðan ég gerði þetta síðast. Það var of langt fannst mér og ég ætla að prófa 8 vikur núna.

Hvað finnst þér erfiðast við að keppa í vaxtarrækt?
Sem betur fer finnst mér það bara gaman og líður sjaldan betur en þegar ég er að kötta. Það eina sem gæti flokkast undir erfitt er að vera skipulagður í matarræðinu og ná að borða reglulega þegar mikið er að gera í vinnunni.


Hvaða fæðubótaefni notarðu helst ?


Fæðubótaefni í uppáhaldi:
Prótein og Gainer er í uppáhaldi en þess utan nota ég gjarnan creatin, glutamin, ZMA og fjölvítamín. Að sjálfsögðu allt frá Proteinfabrikken

 

 

 

Æfingarvikan: fyrir þetta mót?
Ég æfi 3 skipt núna; 1 - brjóst, bak og magi, 2 - læri og kálfar 3 - axlir, handleggir léttur magi og léttir kálfar. Ég æfi eins oft og vinna og fjölskylda leyfa og það endar yfirleitt í 4-6 sinnum í viku. Engin svo kölluð brennsla, bara járn.


Hvað er algengasta spurningin sem þú færð ?
Ætlarðu ekki að fara að hætta þessari vitleysu?


Hvernig fólki finnst þér best að æfa með ?
Uppáhalds æfingafélaginn er keppandi í vaxtarrækt, stærri og sterkari en ég.


Hver finnst þér vera algengasti misskilningurinn við vaxtarrækt/fitness?
Að við borðum bara gulrætur, drekkum ekki dropa síðustu vikuna fyrir mót og vinnum allir sem dyraverðir eða handrukkarar.


Hver eru algengustu byrjendamistökin ?
Óþolinmæði og taka allt of mikið af einangrandi æfingum "BACK TO BASIC"

 

 

 

Hvað þarf til til þess að ná árangri ?
Aga, þolinmæði og læra af mistökum (sínum og annarra)


Ráð til nýliða í vaxtarrækt ?
Hlusta á þá sem hafa náð árangri, það er nóg af sjálskipuðum sérfræðingum sem hafa lesið nokkur líkamsræktarblöð og vita "allt"

 

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 24. júlí 2008 20:56