Bragðið af árangri er sjúklega gott ! =)Viðtal við Katrínu Evu, Íslandsmeistara í +164cm flokki Ég heiti Katrín Eva og er 26 ára gömul. Ég er fædd í Vestmannaeyjum og bjó þar fram á unglingsár, gott að vera barn í eyjum, endalaus útiafþreying. Flutti svo í gettóið í Breiðholtinu, snilldatímar þaðan. Hef alltaf verið algjört íþróttanörd, spilaði fótbolta og svo æfði ég box. Ég er núna búsett í Garðabænum og mín tekjusöfnun felst í að steypa ál í straumsvíkinni. Ég er með stúdentspróf og einkaþjálfararéttindi, mig langar að mennta mig meira og það er á stefnuskránni eins og svo mjög margt annað. Hvernig er venjulegur dagur í lífi þínu þegar þú ert að kötta ? Fínt að byrja daginn á einhverskonar hreyfingu, fer í Ultratone á stofunni Fyrir og eftir. Lyfti svo seinnipartinn og tek svo göngutúr fyrir svefn og vinn einhversstaðar þarna á milli (er í vaktavinnu) annars er ég ekkert heltekin af þessu, ég er vön að æfa mikið og borða hollan mat þannig að ég tek bara aðeins til í mataræðinu en reglurnar mínar eru: - Ekkert má vera hærra en 1% fita - Borða ca. 150 gr. af próteinum á dag og minna af kolvetnum. Borða í raun bara hollan mat, elska holla skyndibitastaði eins og Saffran og BK kjúkling eins líka vörurnar frá Grím Kokk mjög hollur matur þar á ferð. Ég er sko fáránlega lélegur kokkur, er að kafna núna afþví að ég var að reyna að ofnbaka sætar kartöflur og brunaboðinn fór í gang og íbúðin er einn reykur : ) Hvernig ertu að borða síðustu dagana í köttinu ? Mánudag, Þriðjudag og Miðvikudag: Kolvetnissvelti (40gr haframjöl, rest prótein) Hleð upp á kolvetnum hina dagana.
Hvernig vatnslosarðu? Drekk mikið vatn fyrst og svo minna... Mikið salt fyrst og svo minna... Við yfirfærðum Magga aðferð bara á mig. Stelpur verða t.d að passa sig á að gera ekki nákvæmlega eins og karlmenn sem eru 40kg þyngri en þær, það getur bara verið ávísun á nýrnabilun. Styrktaraðilar: Ég er þessum aðilum mjög þakklát fyrir allan þann stuðning sem ég hef fengið: Fyrir og eftir, Ultratone, Grímur Kokkur, Scitec nutrition, Saffran, BK-Kjúklingur, Ibiza sólbaðstofa og neglur frá Vanessu Martinetti Hvaða heimasíður skoðaðu mest ? 1. Google: elska fróðleik af öllu tagi. Er mjög sveimhuga stúlka. 2. Mbl: fínt að geta valið úr þær fréttir sem maður vill heyra. Stundum nenni ég ekki neikvæðni. 3. Facebook: fínt að halda í tengslin 4. Vodvafikn: allt um skemmtilegu sportin á einum stað. Hver eru markmið þín ? Í dag er markmiðið að koma markmiðum mínum á blað , finna svo nógu kræsilega gulrót við hvert þeirra sem drífur mig áfram til að ná þeim. Stefnuleysi er böl, ég er að finna minn farveg og hef séð það á liðnu ári hvað það er yndislegt að uppskera vel. Hvað drífur þig áfram ? Ég hef eld í maganum. Bragðið af árangri. Sjúklega bragðgott ! =) svo þegar að bragðlaukarnir dofna þá kemur Bessinn til bjargar. Hvaða líkamspart ertu ánægðust með ? Ég er sátt við mína líkamslögun, gott mitti og vænn rass. Er reyndar með ofvaxinn bísep, veit ekki alveg hvað ég get grætt á því. Hver eru þín helsta fyrirmynd ? Mín helsta fyrirmynd er besti vaxtarræktarmaður Íslandssögunnar: Magnús Bess. Það er ástæða fyrir því að hann hefur afrekað alla þessa titla og heldur stöðugt áfram að bæta sig. Það er nautn að fylgjast með því hvað hann er agaður og æfir fallega hehe... ég er meira svona kærulausa Kata. En fallegasti kvenlíkami sem ég hef séð hafði Cory Everson þegar hún var upp á sitt besta... geri aðrir betur. Hverjir eru kostir og gallar sportsins ? Kostirnir eru formið sem maður nær sér í og fólkið sem maður kynnist, gallinn er hvað þetta getur verið erfitt fyrir hausinn og neikvætt fólk með minnimáttarkennd sem baktalar aðra í stað þess að bæta sig sjálft. Hvernig finnst þér best að æfa og með hverjum ? Mér finnst best að æfa með kærastanum mínum, því hann hefur trú á mér og hvetur mig áfram. Við tökum fyrir einn vöðvahóp á dag og það hefur reynst okkur báðum vel. Fæðubótarefni notarðu ? Ég nota vörurnar frá Scitec en þær vörur eru mjög góðar. Nóg af próteini, glútamíni, vítamínum og steinefnum. Nú sigraðirðu Íslandsmótið um páskana og það var þitt fyrsta innlenda mót hvernig var tilfinningin ? :) Rosaleg! Ég er búin að fylgjast með þessu sporti svo lengi og sá þetta sem svo fjarlægan draum, ég var svo skíthrædd og vældi alla vikuna um að ég vildi ekki keppa, mér gekk svo vel úti að ég vildi ekki glata því hérna heima fór bara norður útaf því að Maggi hótaði að hann myndi ekki keppa ef ég myndi ekki keppa svo vann ég bara =) En ég var líka búin að leggja mig ROSALEGA mikið fram. Nú kepptirðu á Sterkasta Kona Íslands sem haldin í síðasta mánuði hvernig gekk þar ? Þar lenti ég í þriðja sæti, ég er sko bara 60 kg og var til að mynda að dedda 150 kg, vann dekkjaveltuna og hleðslugreinina sem endaði á 105 kg stein. Í þessari keppni kom ég sjálfri mér mjög á óvart og sé í raun eftir því að hafa verið svona skíthrædd við að keppa í þessu, ef maður sér sig ekki sem sigurvegara þá verður maður ekki sigurvegari. Í þessu tilfelli hafði Maggi mun meiri trú á mér en ég sjálf. Nú ákvaðstu frekar seint að keppa, hvenær byrjaðirðu að kötta fyrir þetta mót ? Ég ætlaði ekki að keppa á þessu móti, en svo voru bara svo margar góðar skráðar. Ég er búin að vera að kötta í 4 vikur (tók 14 vikur síðast), en það má ekki gleyma því að ég er búin að æfa þétt allt árið og vona að það skili mér miklu. Þetta er fitness en ekki vaxtarrækt þannig að krafan um þennan ýkta skurð er ekki til staðar. (skv. reglubók IFBB um bodyfitness: Viðbætur 2009: Article 93 The physique should be assessed as to its level of overall muscle tone, achieved through athletic endeavours. The muscle groups should have a round and firm appearance with a small amount of body fat. The physique should neither be excessively muscular nor excessively lean and should be free from deep muscle separation and/or striations. Physiques that are considered either too muscular or toolean must be marked down.
Hvar ertu að æfa ? Ég æfi í Sporthúsinu, þar er mjög fínt að æfa og gott andrúmsloft. Síðan tek ég líka stundum æfingar í Super Gym hjá Gemmu og Benna var þar fyrir aflraunakeppnina. Þau eru yndisleg, fínt að geta flakkað á milli tveggja heima sportsins með því einu að breyta um húsnæði. Nú býrðu með vaxtarræktartröllinu Magnúsi Bess, hvernig kynntust þið ? Við kynntumst í vinnunni og í ræktinni. Geta stelpur sem vilja ná svona brjáluðum árangri eins og þú komið í þjálfun til þín og fengið aðstoð fyrir mót ? "Brjáluðum árangri" hehehehe takk Sunna :) en já endilega. Ég er að fara að einbeita mér meira að þjálfun og við Maggi ætlum að fara af stað með fjarþjálfun eftir áramót. Þó svo að draumurinn um að komast í form virðist fjarstæðukenndur, þá er ótrúlegt hvað maður getur gert með því að búta niður háleit markmið í smærri parta og taka eitt skref í einu. Við höfum bæði gríðarlega þekkingu á þessu sviði og langar mikið til að hjálpa landanum með sig. Við erum byrjuð að taka niður pantanir og heimasíða er í vinnslu. Þangað til hún kemur upp er bara hægt að hafa samband á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða í síma: 618-2583. Ferill: 3.sæti + 163 cm Body fitness Osló Grand Prix 2009 1.sæti + 163 cm Body fitness Íslandsmót IFBB 2009 4.sæti + 163 cm Body fitness Loaded Cup í Danmörku 2009
|