|
Icefitness á morgun, viðtal við núverandi meistara Sævar Ingi Borgarsson
Sævar Ingi er fæddur og uppalinn í Keflavík og vinnur sem slökkviliðs og sjúkraflutningamaður hjá Brunavörnum Suðurnesja. Sævar er þrjóskur og gefst aldrei upp á því sem hann tekur sér fyrir hendur.
Sævar hóf íþróttaferilinn 5 ára gamall í fótbolta og öllum öðrum hugsanlegum íþróttum en þegar hann komst í meistaraflokkinn ákvað hann að einbeita sér að fótboltanum. Vegna mikilla meiðsla neyddist hann til að hætta 27 ára. Þá fór hann að einbeita sér að lyftingum en hann hafði alltaf verið að lyfta meðfram boltanum og fljótlega tók hann þá ákvörðun að taka þátt í fitness. Hann leiddist einnig út í Kraftlyftingar eftir að búið var að hvetja hann til að taka þátt. Þrautabrautin í Icefitnessinu gekk vel hjá honum en hann sá að til að geta einhver tíma unnið þyfti hann að bæta sig í samanburðinum. Hann fór því að einbeita sér að kraftlyftingunum og hvíla fitnessið til að þroska skrokkinn. Staður: Keflavík Æfingastöð: Massi og Lífstíll Æfingafélagi: Ipod Nano Atvinna? Slökkviliðs og sjúkraflutningarmaður og Verkefnastjóri Heilsuskóla Keilis, held utan um ÍAK einkaþjálfarann og set upp námskeið og fyrirlestra Áhugamál: Fitness, kraftlyftingar og fótbolti Hvernig kviknaði áhuginn: Eftir 5 fótbrot, 4 hnéaðgerði, 1 liðbandaaðgerð á ökkla og enn fleiri álagsmeiðsl á 6 árum í fótbolta ákvað ég að setja skónna á hilluna. Fór í salinn í kringum 2000 að endurhæfa því ég átti að fara í fimmtu og sjöttu hnéaðgerðina og ákvað að sleppa þeim og fara frekar að lyfta og eftir það var ekki aftur snúið. Það kom aldrei annað í hug en að fara í eitthvað sport til að keppa í eftir að ég hætti í fótboltanum þar sem ég átti bestu ár ferils míns eftir og fitnessið var búið að heilla mig. Eftir að ég byrjaði að lyfta kom sjúkur áhugi á fitnessinu. Þegar ég var að staðna í fitnessinu tók ég 2ja ára hvíld sem varð 4 ár til að laga galla mína í samanburði og þar kviknaði annar sjúkur áhugi á kraftlyftingum.
 Svævar Ingi og Örn Steinar mynd frá 2001 Ljósm. Örn Steinar
Hver var helsta fyrirmynd þín þegar þú varst að byrja: Enginn, en mig langaði að vinna Kristján Ársælsson einn daginn þar sem hann er legend í þessu sporti og til að verða legend þarftu að vinna legend og það er víst ekki hægt í dag þar sem hann er hættur. En ef einhver hafi verið fyrirmynd í þessu sporti þá var það hann. En í dag: Enginn, en það eru margar flottar fyrirmyndir í þessu sporti eins og Anna Bella, Kiddi Sam, Freyja Sig o.mfl Hver eru framtíðarplönin? Ætlarðu að keppa aftur ? Haha já það er alltaf spurning, Kannski meiri spurning hvort maður fari ekki að fara að hætta. Það kemur í ljós en á meðan maður hefur gaman af þessu, þá er maður ekki tilbúinn að hætta alveg strax. Eva Sveinsdóttir & Sævar Ingi Íslandsmeistarar Ljósm Icefitness.is
Hvernig væri hægt að styrkja vaxtarrækt/fitness/kraftlyftingar/aflraunir á Íslandi? Það þarf BYLTINGU! Á meðan ákveðin öfl eru í þessu sporti mun fitnessið aldrei ná sér eða verða betra en það er í dag. Það er búið að staðna í nokkur ár og tel ég vera þessum öflum að kenna! Og með kraftlyftingarnar þá er það sama þar, en ég tel að Kraft sé á réttri leið með að fara inn í ÍSÍ því þá er meiri aðgangur að sjónvarpi, styrkjum o.fl. Annað er að það þyrfti að vera kynslóðaskipti þar sem unga kynslóðin tekur við stjórnartaumunum því ég held að það sé einfaldlega búið að elda grátt silvur í of langann tíma. En aðalmálið er að menn þurfa að fara að vinna saman en ekki gegn hvor öðrum! Uppáhaldsæfing og líkamspartur? Það er engin spurning BEYGJUR en ég á engan uppáhaldslíkamspart Hvað tekurðu langan tíma í undirbúning fyrir keppni? Því meiri sem reynslan verður því lengri undibúning tekur maður! Ég fer að undirbúa mig eiginlega strax eftir mót. Maður finnur alltaf eitthvað sem má laga. En hvað skurð varðar þá er held ég 16 vikur sé góður tími fyrir mig Hvað finnst þér erfiðast við að keppa í fitness? Undirbúa sig fyrir þrautirnar þar sem ég er með mjög stíft prógram fyrir það. Í kraftlyftingunum þá er allt erfitt og sennilega er matarræðið erfiðast þar. Hvaða fæðubótaefni notarðu helst ? Fæðubótaefni í uppáhaldi: QNT sem Alli í Patron er með, eru einfaldlega bestu fæðubótarefnin sem ég hef notað Æfingarvikan: On season æfi ég 12 x í viku annars 4-6 x í viku Hvað er algengasta spurningin sem þú færð ? Hvað er klukkan Hvernig fólki finnst þér best að æfa með ? Þeir sem æfa á sama leveli og ég Hver finnst þér vera algengasti misskilningurinn við fitness? Að það sé óhollara að vera í fitnessformi heldur en að vera 20-30kg of þungur en. Fólk gagnrýnir alltaf það sem það þekkir ekki. Hver eru algengustu byrjendamistökin? Leita sér ekki réttra upplýsinga Hvað þarf til til þess að ná árangri? Sjálfsgagnrýni, sækjast eftir gagnrýni, aga, skipulag, leita eftir réttum upplýsingum, stórt hjarta og æfa eins og mófó og gefast aldrei upp og síðast en ekki síst að hugsa stórt þá nærðu langt! Ráð til nýliða? Allt í lagi að gera mistök en lærðu af þeim og ekki gleyma pósunum og sviðsframkomunni því þær vega allt of þungt til að taka þær ekki alvarlega. Svo sama og spurningu 27. 1.sæti Íslandsmót Icefitness 2008 6.sæti Þrautakeppni Intersport 2008 1.sæti Íslandsmót Icefitness 2007Lyftingarmaður ársins hjá UMFN 2007 Lyftingarmaður ársins hjá UMFN 2006 Lyftingarmaður ársins hjá UMFN 2004 6.sæti Íslandsmót Galaxy Fitness 2003 4.sæti Bikarmót Galaxy Fitness 2003 3.-4.sæti Íslandsmót Galaxy Fitness 2002 |
|