Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Fimmtudagur, 30. apríl 2009 00:00

Viðatl við Ólaf Örn Ólafsson

 
Ólafur var að keppa á sínu fyrsta fitness móti um páskana og langaði mig að forvitnast um hvernig undirbúningurinn gekk.
 
 
Nú varst þú að keppa á þínu fyrsta móti um páskana, hvernig gekk undirbúningurinn ?
Undirbúningurinn gekk misvel, ég var í prófum úti í Danmörku í byrjun árs og æfingarnar og mataræðið því ekki alveg sem skildi... en þetta hafðist og jafnvel betur en ég var farinn að búast við
 
Hvað var undirbúningurinn langur ?
Upprunalega planið var að byrja að kötta í janúar...En eins og ég sagði þá var ég í prófum og fór svo til Englands í febrúar að skoða skóla og var bara í sukki þar, ætli köttið hafi ekki bara verið svona 4-6 vikur
 
Hvernig var matarræðið og æfingarnar?
Matarræðið var alls ekki nógu strangt... ég leyfði mér allt of mikið svindl og var allt of góður við sjálfan mig, það var ekki nema síðustu 2-3 vikurnar sem ég tók vel á því og þá fóru líka hlutirnir að gerast. næst er planið að vera betur skipulagður og duglegri að elda sjálfur, endaði oft í að detta bara í eintóma sjeika vegna óskipulags og tímaskorts...
 
Ég hélt mig bara við mjög svipað lyftingarprógram, tók 5skipt og þungt, oftast í kringum 6-12 reps, svo 2 vikum fyrir mót hætti ég að lyfta til failure og tók aðeins léttara
 
Hvenær var erfiðasta tímabilið ?
Fyrri partur síðustu viku fyrir mót klárlega... dagarnir sem kolvetnin voru sem minnst, og þá var þriðjudagurinn erfiðastur. Ég var líka að díla við ýmislegt annað á sama tíma og hugurinn oft á tíðum ekki á rettum stað
 
Hvernig var svo sjálfur keppnisdagurinn ?
Keppnisdagurinn var rosa skemmtilegur og bara mjög þægilegur. Ég var ánægður með stemmninguna baksviðs og þrátt fyrir gott keppnisskap í flestum þá voru öll dýrin í skóginum bara vinir og fór vel með mönnum á milli greina.

Ég skemmti mér allavega konunglega og um leið og maður var kominn baksviðs og á skýluna fann maður að þetta var allt undirbúningsins virði og maður orðinn "hooked"

Eitthvað sem kom þér á óvart á mótsdag ?
Ég kom sjálfum mér á óvart í dýfunum, hafði ekkert getað tekið dýfur sökum verks í olnboganum, en ég fann lítið fyrir því á sviðinu... svo var dómgæslan í þrautunum svolítið tvísýn en maður var nú búinn að heyra það oft áður, ekki að ég sé eitthvað ósáttur við minn árangur...

 
Eitthvað sem þú myndir gera öðruvísi fyrir næsta mót  ?
Já klárlega, skipuleggja mig betur í mataræðinu og vera duglegri að elda á kvöldin fyrir næsta dag. Byrgja mig vel uppá kjúklingi og eggjahvítum. Svo ætla ég að passa mig á að láta aðra hluti ekki trufla einbeitinguna fyrir keppnina eins og var mikið fyrir síðasta mót.