Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 22. mars 2010 15:42

Hvað er að frétta Anna Bella ?

Það er allt ljómandi að frétta af mér :) 

Anna Bella Markúsdóttir Fitness

Ég er ennþá að vinna sem einkaþjálfari hjá World Class ásamt þess að vinna hjá Distica e hád í lyfjaumpökkun

Ótrúlegt en satt þá ætla ég að keppa um páskana á Íslandsmótinu og á Grand Prix Reykjavík mótinu sem verður nú vonandi.

Ég tók skyndiákvörðun að keppa þegar hún Björk mín hringdi í mig og sagði að Grand Prix yrði haldið hér heima 10.apríl. Tæpum klukkutíma áður sagði ég við Guðrúnu Hafdísi að ég væri alveg hætt og búin að leggja skóna á hilluna (kannast einhver við þetta haha) þess vegna er eins gott að mótið verði ;)

Með hverjum ertu að æfa þessa dagana ?

Ég er alltaf að æfa með Björk minni sem er orðin jafnmikið þjálfari minn og æfingafélagi og besti vinur sem nokkur manneskja getur orðið svo heppin að eignast. Æfum alltaf í Turninum Kópavogi sem er okkar griðarstaður !

Hlakka óendanlega mikið til að keppa við þessa sterku keppendur sem ég hef séð og heyrt að ætla að keppa !!!

Sjáumst fyrir norðan ! :)

Anna Bella Markúsdóttir keppti síðast í Fitness árið 2008 þegar Norðurlandamótið var haldið hér árið 2008