Hvað er að frétta Ranný Kramer ? Ranný Kramer sigraði +163cm flokk Fitness á Bikarmóti IFBB 2009  Rannveig Kramer á Bikarmótinu 2009 Ljósm. Sunna Hlín
|
Ég er á fullu að undirbúa mig undir Íslandsmótið sem verður haldið á Akureyri um páskana, en ég tók þá ákvörðun fljótlega eftir Bikarmótið í Nóvember að fyrst ég væri að þessu brölti þá yrði ég nú eiginlega að klára það að fara á bæði mótin. Þetta verður hrikalega sterkt mót myndi ég ætla, það sterkasta sem hefur verið haldið lengi held ég að ég geti fullyrt. Það verða þarna reynsluboltar ásamt því að þarna eru að koma inn stelpur sem eiga að ég held eftir að stimpla sig rækilega inn. Þetta verður svakalega spennandi, mæli með að allir mæti ! :) Hvernig er undirbúningurinn búinn að ganga fyrir þetta mót ? Ég vissi ekki alveg hvar ég stæði í að skera niður þarna fyrir nóvember mótið, því ég keppti síðast 2005 því ákvað ég að taka 12 vikur til að vera alveg viss um að vera tilbúin þegar kæmi að keppni. Þessi tími hentar mér mjög vel þar sem ég verð að taka smá búst daga þ.e. nammi daga + borða þá helst rautt kjöt um helgar aðeins að hlaða mig því maður er nánast eingöngu á hvítu kjöti, fiski og slíku.
Hvað ertu helst að borða í undirbúningnum ?
Mataræðið hjá mér byggist einmitt á þessum tíma upp á kjúklingabringum, ýsu og laxi ásamt sætum kartöflum, ég nota BBQ sósu á allt finnst það mjög gott og hefur ekkert spillt neinu fyrir mér. Ég breyti líka aðeins stundum út af vananum og fæ mér eitthvað á Nings en það er kærkomin tilbreyting, fæ mér þá brún grjón, kjúkling og brokkolí. En stundum fæ ég mér líka kjúklingasalatið hjá þeim. Hvaða fæðurbótaefni notarðu helst ? Ljósm. Jónas Hallgrímsson
|
Ég nota Whey prótein í niðurskurði sem millimáltíðir, glutamín 3x á dag góða teskeið, hreint kreatín eftir æfingar góða teskeið, GRS5 protein fyrir svefninn og fullt af fitusýrum yfir daginn en ég tek rúmlega dagskammtinn af þeim þar sem maður er að skera svo mikið niður af fitu úr matnum þá er nauðsynlegt að taka inn holla fitu í staðinn. Hvar ertu að æfa og með hverjum ?
Ég æfi á morgnana kl 6 í World Class í Spönginni með vinkonum mínum Dóru Ragnarsdóttur og Írisi Reynisdóttur sem eins og ég sagði í fyrra viðtalinu við mig hefur keppt 2x í Icefitness og varð m.a. í seinna skiptið í 4. sæti. :) Yndislegar stelpur og frábærir æfingafélagar. :) Er einhver búinn að hjálpa þér með undirbúninginn fyrir mótið ?
Guðrún H. Ólafsdóttir sem aldeilis hefur nú unnið titlana hér á fróni ásamt því að hafa gert það gott á erlendum mótum, hefur verið mér stoð og stytta í undirbúningi fyrir bæði mótin. Hún hefur séð um að mæla fituprósentu, aðstoða mig við samsetningu á fótaæfingum og spekulerað með mér í matnum þótt hún sé ekki alveg á því að BBQ sósan eigi heima í niðurskurði það er bara ég hehehe. Hún er einmitt nýbökuð móðir en hún eignaðist lítinn sætan strák s.l. helgi. :)
Líkami og lífsstíll sjá mér fyrir öllum fæðubótaefnunum frá SCI-mx. NINGS sem hefur gert mér léttbærara að skera niður og fá smá fjölbreytni í mataræðinu. TANIÐ já ekki þarf að fara mörgum orðum um það er náttúrlega frábær ljósastofa, og síðast en ekki síst, harlengingar.is sem eins og nafnið segir til um sjá mér fyrir ofursíðu hári fyrir keppnina, ég s.s held varla haus núna fyrir hári hehehe :) Eva Sveins & Ranný á Reykjavík Fashion Festival Ljósm. Jói Kjartans
| Nú tókstu þátt í tískusýningu í síðust vikur segðu okkur aðeins frá því? Já Reykjavík Fashion Festival hún Eva Sveins fitnesskona plataði mig í þetta hehe. Ætlaði nú ekki að þora í þetta fyrst en lét svo tilleiðast og sé ekki eftir því. Við vorum að sýna hatta, höfuðskraut, hanska, legghlífar, klúta og veski. Hönnurðurnir voru Thelma Design sem átti höfuðskrautið og hattana og Go With Jan sem átti hina fylgihlutina. Þetta var mögnuð sýning og við slóum víst alveg í gegn hehe. Þau vildi gera sýninguna öðruvísi og ég held að hugmyndin hafi komið þegar hún sá mynd af Evu í Icefitness og langaði að gera eitthvað svona grúví og það tókst. :)
Við sem vorum þarna voru Ég, Eva Sveins, Elín H. Guðnadóttir, Hrafnhildur Halldórs, Sólveig Regína, og Guðrún Hafdís. Þetta var alveg ógleymanlegt kvöld.
Nú er það bara keppnin um páskana og svo vonandi Grand Prix Reykjavík en svo veit ég ekki með framhaldið :)
|