Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Laugardagur, 27. mars 2010 12:27

"Holy shit hvað er ég búin að koma mér í"

Katrín Eva sigursæl eftir aðeins 1 ár í fitness

 
Sigurvegari Figure F class á Arnold Classic 2010
Ljósm. Einkasafn

Katrín Eva kom, sá og sigraði sinn flokk þegar hún keppti á Arnold Classic Amaetur í mars á þessu ári. Arnold Classic er einn stærsti viðburður í fitness og vaxtarrækt á hverju ári og því hlýtur að vera ótrúleg upplifun að vera keppandi á þessu móti. 

Hvernig var að vera baksviðs á  Arnold Classic ?

Þetta var náttúrlega fyrst og fremst ótrúlega skemmtilegt og gaman að upplifa svona STÓRT og vel skipulagt mót. Mín hugsun var eiginlega holy shit hvað er ég búin að koma mér í… Ég var þarna baksviðs ásamt ca. 400 hundruð brjáluðum stúlkum í bikiníi sem allar voru komnar til Ameríku til að meika það. Það var mikið af pressuliði og ég er bara sérstaklega hrifin af skipulaginu og hve vel var að öllu staðið. Ég hékk samt á bakvið í marga klukkutíma, búin að vera tilbúin frá fyrstu mínútu, fyrir heilar 5 mínútur á sviðinu… hehehe.  Afþví þetta var bara forkeppni þá þurfti ég að mæta aftur tveimur dögum seinna í aðalkeppnina. 


Katrín Eva Baksviðs - Top 5 í Figure F class

Ljósm. Ron Avidan - Bodybuilding.com

 

Hvernig leið þér þegar nafnið  þitt var kallað upp sem sigurvegari flokksins ?

Úrslitin eru þannig að 10 komast áfram, 6 í mínum flokki, svo er það köttað strax niður í 5 stelpur sem fara á sviðið í verðlaunaafhendingu. Þar eru úrslitin tilkynnt frá fimmta í fyrsta sæti, þannig að þú vilt heyra nafnið þitt síðast.  Maggi tók video af verðlaunaafhendingunni, þar sést hegðunin okkar bersýnilega:)


Úrslit Figure F flokkur - Arnold Classic 2010
Myndband: Maggi Bess

Mér leið  fáránlega vel og helsátt við að lenda ekki í síðasta sæti.  

Hvað varstu að hugsa?

Ég hugsaði mikið til fólksins sem hafði trú á mér og sent á mig hvatningarskilaboð eftir að forkeppninni lauk og svo bara.. Hey ég vann !!.. hey ég VANN!!… Mest langaði mig hoppa í salinn og finna Magga ! Hann var búinn að segja við mig daglega í 6 mánuði að ég myndi rúlla þessu upp og búinn að segja það við alla heima líka.  



Katrín Eva Baksviðs - Top 5 í Figure F class
Ljósm. Ron Avidan - Bodybuilding.com

Hvað  gerðist svo eftir að þú steigst af sviðinu ?

Ég fékk mínar 15 mínútur af frægð. Ég er komin í ansi mörg fjölskyldualbúm með litlum stelpum og mömmum, tönuð í drasl. Bara fyndið.  

Hvað  fékkstu í verðlaun ?

Í áhugamannakeppninni eru engin peningaverðlaun. Ég fékk þrusuflottan Arnold Classic jakka, merktan Arnold Classic Figure Winner að innan og Styttubikar. Og auðvitað heiðurinn =) . Það er líka gaman að sjá prófíl um sig á helstu síðunum sem fjalla um sportið, eins og td. Bodybuilding.com, FLEX online og RX muscle.


Katrín Eva & Maggi Bess eftir sigurinn
Ljósm. Einkasafn

Ertu byrjuð  að stefna á eitthvað  annað mót í framhaldið  ?

Það er ekki enn komið ár síðan ég byrjaði að keppa, 5 mót búin hjá mér, þar af 1 aflraunakeppni. En ég er búin að vera ansi dugleg að borða MIKIÐ eftir mótið (elska mat) og safna orku fyrir enn meiri átök. Ég keppi ekki á íslandsmeistaramótinu, né á Grand Prix Reykjavík.  Sjáum til með framhald. Það er samt alltaf gott að vera að stefna á mót, tek Magga á þetta… Heldur manni fókuseruðum á markmiðin. Ég mæti samt norður að horfa á kallinn minn keppa, hann slær aldrei slöku við þessi elska.  


Katrín Eva með Monicu Brant á Arnold
Ljósm. Einkasafn

Ég mæli með  því að fara á þetta mót fyrir alla sem hafa áhuga á sportinu, ég fíla líka hvernig þeir vilja hafa figure flokkin, það er ekki sóst eftir of miklum vöðvum, né of miklum skurði og í raun dæmt niður fyrir það ef það er of mikið. Þetta er fitness en ekki vaxtarrækt, það var meira að segja verið að segja það við okkur á sviðinu, máttum ekkert spenna okkur of mikið eða slíkt… það var alltaf bara sagt: ,,girls this is not a bodybuilding contest, Relax” 

Ég elska að móta líkamann minn og vil stöðugt vera að betrumbæta mig, ég hef ekki áhuga á að bulka mig upp í eitthvað bull. Ef þeir vilja meira kjöt þá finn ég mér bara eitthvað annað sport, þetta er ekki þess virði að mínu mati. 

Að lokum vil ég þakka öllum fyrir allar hamingjuóskirnar, bæði á  facebook og í persónu, veit ekki hvort að fólk geri sér grein fyrir hve mikils ég met þær.  Það er enginn smá  slatti af kveðjum sem ég hef fengið og það er greinilegt að mjög mjög mjög margir hafa áhuga á sportinu á þessu landi.

Síðast en ekki síst vil ég þakka fyrirtækjunum sem studdu við bakið á mér bæði í undirbúningnum og ferðakostnaði:  Grímur Kokkur, Veisluturninn, Extra, Better Bodies, Sportland, Sign Skartgripir, BK kjúklingur, Saffran, Nu skin, Þrír Frakkar, Sporthúsið og SuperGym.