Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Miðvikudagur, 31. mars 2010 00:00

Hvað er að frétta Marianne ?



Marianne kom eins og þruma úr heiðskýru lofti þegar hún mætti á sitt fyrsta mót árið 2007 en þá mætti hún ótrúlega skorin og keppti í unglingaflokki. Hún hefur svo ekkert keppt síðan á Bikarmótinu 2007 en hefur nú skráð sig til leiks á Íslandsmótið fyrir norðan.

Heyrðu það er bara frábært að frétta :) Er á fullu að undirbúa mig núna fyrir Íslandsmótið um páskana, ásamt því að vera í námi í Háskóla Íslands að læra lyfjafræði. Þannig að það er brjálað að gera, skóli, æfingar og borða.

Nú hefur þú ekkert keppt síðan Bikarmótið 2007. Einhver sérstök ástæða fyrir pásunni ?

- Nei í rauninni engin önnur ástæða en bara leti. Ég tók þátt í Íslandsmótinu þarna um páskana 2007 og svo strax aftur bikarmótinu um haustið og fannst þetta taka frekar mikið á og langaði bara að slaka vel á. Svo er líka rosa erfitt fyrir mig að skera svona niður því ég er svakalegur nammigrís :)

Hver þjálfaði þig fyrir mótið og ertu með einhverja stuðningsaðila ?
-Heyrðu það er hann pabbi minn sem að þjálfar mig, hann gerir fyrir mig snilldarprógrömm því ég verð alltaf að vera breyta til, annars fæ ég fljótt leið á æfingunum. Annars er ég ekki með neina stuðningsaðila, nema kannski mömmu sem er búin að vera ekkert smá dugleg að elda fyrir mig. Mér þykir þau dugleg að nenna standa í þessu með mér :)

Hvenær hófstu undirbúning fyrir þetta mót ?
Ég byrjaði undirbúninginn á fullu í byrjun janúar, borðaði vel yfir jólin og langaði að komast aftur í form og fannst alveg tilvalið að setja mér eitthvert markmið. Var líka pínu farin að sakna að keppa þannig að strax eftir áramótin fór allt á fullt.

Hvar ertu að æfa og með hverjum ?
Ég æfi í íþrótta aðstöðunni á Vesturgötu á Akranesi, það er frekar lítil rækt og alltaf sama fólkið en voða kósý bara. Svo er ég líka að þjálfa fimleika þar þannig að ég þekki flesta. En yfirleitt æfi ég bara ein, finnst það mjög fínt :)