Hvað er að frétta ?
Heiðrún Sigurðardóttir

Heyrðu það er bara frábært að frétta, er að fara út á Evrópumeistaramót í Makedoníu um næstu helgi. Una vinkona kemur með mér út en hún hefur verið að keppa í Módel fitness og við förum út á fimmtudaginn.
Hvernig er formið ?
Formið er mjög gott kemur allt í ljós þegar að þessu kemur. Er með þjálfara úti, hann kemur frá Spáni og heitir Armando Marquez og er mjög virtur í þessum bransa, er t.d alltaf kynnir á Heimsmeistarmótinu. Við erum að vinna í allt öðrum árherslum núna og virðist virka vel.
En ég er samt alltaf í mjög góðu sambandið við Sigga Gests þjálfara að norðan, hann hefur reynst mér best af öllum og á honum minn árangur að þakka. Erfiðara að hafa samband eftir að maður flutti suður en hann fylgist með öllu
Hvernig kom það til að hann fór að þjálfa þig ?
Hann hafði fyrst samband við mig eftir Heimsmeistaramótið 2006. Svo tók hann viðtal við mig sem birtist í Muscle & Fitness og hefur verið yfir myndatökum sem ég hef farið í úti.